Ferill 403. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 679  —  403. mál.




Fyrirspurn


til innviðaráðherra um umferðaröryggisaðgerðir og fallvarnir.

Frá Ingveldi Önnu Sigurðardóttur.


     1.      Hvernig er fjármunum forgangsraðað í svokallaðar minni umferðaröryggisaðgerðir?
     2.      Eru aðgerðirnar flokkaðar eftir tegund eða því hve áríðandi þær eru?
     3.      Hver ber ábyrgð á forgangsröðun minni umferðaröryggisaðgerða?
     4.      Hversu miklum fjármunum hefur verið ráðstafað í minni umferðaröryggisaðgerðir á síðustu fimm árum? Svar óskast sundurliðað eftir árum.
     5.      Í hvaða umferðaröryggisaðgerðir á að ráðast samkvæmt núverandi forgangsröðun aðgerða?
     6.      Hversu miklum fjármunum hefur verið ráðstafað í fallvarnir við vegi landsins á síðustu tíu árum? Svar óskast sundurliðað eftir árum.


Skriflegt svar óskast.