Ferill 404. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 680 — 404. mál.
Fyrirspurn
til fjármála- og efnahagsráðherra um lóðarleigusamninga.
Frá Ingveldi Önnu Sigurðardóttur.
1. Hversu margar lóðir leigir ríkið út undir sumarhús?
2. Hversu marga lóðarleigusamninga vegna frístundalóða hefur ríkið gert á síðustu fimm árum? Svar óskast sundurliðað eftir árum.
3. Hversu margir lóðarleigusamningar hafa verið gerðir og eru í gildi í heildina?
4. Hver er kostnaðurinn við umsýslu á frístundalóðum í eigu ríkisins?
5. Stendur til að selja umræddar lóðir til lóðarleigutaka?
Skriflegt svar óskast.