Ferill 408. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Prentað upp.
Þingskjal 684 — 408. mál.
Ráðherra.
Fyrirspurn
til atvinnuvegaráðherra um vinsæla áfangastaði ferðamanna í eigu ríkisins.
Frá Ingveldi Önnu Sigurðardóttur.
1. Hvaða vinsælir áfangastaðir ferðamanna eru í eigu ríkisins?
2. Hvaða vinsælir áfangastaðir ferðamanna eru í sameign ríkis og sveitarfélaga eða einkaaðila? Óskað er eftir að fram komi hvaða aðilar eiga staðina með ríkinu.
3. Stendur til að hefja gjaldtöku á yfirstandandi kjörtímabili að vinsælum áfangastöðum ferðamanna í eigu ríkisins eða sem eru í sameign ríkis og annarra aðila?
Skriflegt svar óskast.