Ferill 112. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 691 — 112. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um útlendinga, nr. 80/2016 (afturköllun alþjóðlegrar verndar).
(Eftir 2. umræðu, 2. febr.)
1. gr.
2. gr.
3. gr.
4. gr.
a. Á eftir 3. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
Heimilt er að afturkalla veitingu alþjóðlegrar verndar ef gildar ástæður eru til að álíta útlending hættulegan öryggi ríkisins, hann hefur hlotið endanlegan dóm fyrir alvarlegt afbrot og er af þeim sökum hættulegur samfélaginu eða hann hefur verið dæmdur fyrir ítrekuð afbrot sem ógna allsherjarreglu eða almannaöryggi.
b. Í stað 2. málsl. 4. mgr. koma tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Séu aðstæður þannig að 1. mgr. 42. gr. eigi við er heimilt að veita útlendingi tímabundið dvalarleyfi skv. 77. gr. a. Við afturköllun alþjóðlegrar verndar skv. e- eða f-lið 1. mgr. skal stjórnvald taka til athugunar hvort veita eigi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða skv. 74. gr.
c. Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Við afturköllun alþjóðlegrar verndar fellur útgefið dvalarleyfi og atvinnuleyfi útlendings úr gildi.
5. gr.
a. 2. og 3. mgr. og 1. málsl. 4. mgr. falla brott.
b. Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Ákvæði XII. kafla gilda um handhafa dvalarleyfis samkvæmt ákvæði þessu.
6. gr.
7. gr.
Umborin dvöl.
Heimilt er að veita dvalarleyfi samkvæmt ákvæði þessu þótt ekki sé fullnægt öllum skilyrðum 1. og 2. mgr. 55. gr.
Dvalarleyfi samkvæmt ákvæði þessu skal að jafnaði ekki veitt til lengri tíma en sex mánaða. Heimilt er að endurnýja dvalarleyfi samkvæmt ákvæði þessu í allt að eitt ár í senn samkvæmt ákvörðun Útlendingastofnunar.
Ákvæði IV., V. og VII. kafla stjórnsýslulaga um andmælarétt, um birtingu ákvörðunar, rökstuðning o.fl. og um stjórnsýslukæru, viðeigandi ákvæði I. kafla laga þessara og ákvæði þessa kafla gilda ekki um ákvörðun um dvalarleyfi samkvæmt ákvæði þessu. Dvalarleyfið hefur ekki önnur réttaráhrif en þau sem sérstaklega er getið í lögum eða reglugerð.
Dvalarleyfi samkvæmt ákvæði þessu getur ekki verið grundvöllur ótímabundins dvalarleyfis.
8. gr.
9. gr.
Við meðferð mála samkvæmt lögum þessum er heimilt að halda gögnum og upplýsingum frá aðila máls ef slíkt telst nauðsynlegt með tilliti til almannahagsmuna, þjóðaröryggis, alþjóðasamskipta ríkisins eða annars ríkis sem tekur þátt í Schengen-samstarfinu eða annarra sérstakra ástæðna.
10. gr.
Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. gildir ákvæði a-liðar 5. gr. ekki um meðferð umsókna sem hafa náð tímamörkum 2. mgr. 74. gr. við gildistöku laga þessara.
11. gr.
Handhafar dvalarleyfis skv. 2. mgr. 74. gr. skulu fá útgefið dvalarleyfi skv. 78. gr. við lok gildistíma dvalarleyfis samkvæmt umsókn. Viðkomandi skal þó uppfylla skilyrði a-liðar 1. mgr. 55. gr. um framfærslu og ekki eiga ólokin mál í refsivörslukerfinu þar sem hann er grunaður eða sakaður um refsiverða háttsemi. Hið sama á við ef útlendingur afplánar fangelsisrefsingu eða bíður afplánunar. Ekki skal tekið gjald fyrir afgreiðslu fyrstu umsóknar um dvalarleyfi samkvæmt ákvæði þessu þrátt fyrir ákvæði 7. tölul. 3. mgr. 14. gr. laga um aukatekjur ríkissjóðs, nr. 88/1991.
12. gr.