Ferill 415. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 697 — 415. mál.
Fyrirspurn
til félags- og húsnæðismálaráðherra um fjölda örorkulífeyrisþega.
Frá Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur.
Hver var fjöldi örorkulífeyrisþega, annars vegar þegar eldra kerfi var í gildi (örorkulífeyrir, tekjutryggingar og sérstök framfærsluuppbót) árin 2023–2025 og hins vegar frá því að nýtt örorkulífeyriskerfi tók gildi 1. sept. 2025 og út árið 2025? Svar óskast sundurliðað eftir kyni, þjóðerni og aldri.
Skriflegt svar óskast.