Ferill 418. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 705 — 418. mál.
Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um einstaklinga sem dvelja ólöglega hér á landi.
Frá Snorra Mássyni.
1. Hver er að mati yfirvalda fjöldi þeirra sem dvelja ólöglega hér á landi hverju sinni? Er ráðherra kunnugt um að getgátur eða áætlun sé til um þann fjölda hverju sinni, t.d. hvort hann nemi hundruðum eða þúsundum? Óskað er eftir því að leitað sé til viðeigandi stofnana til að afla þessara upplýsinga sé þess nokkur kostur.
2. Hve margir hafa verið handteknir vegna ólöglegrar dvalar hér á landi ár hvert sl. fimm ár?
3. Hver er lengsti dvalartími þeirra sem hafa dvalið hér ólöglega?
4. Hver er meðalkostnaður löggæsluyfirvalda við að senda úr landi einstaklinga sem hér dvelja ólöglega og hvert er þjóðerni þeirra?
5. Hvernig uppgötvast að einstaklingur dvelji hér ólöglega? Liggur fyrir sundurliðun um hvort t.d. um sé að ræða tilkynningar eða handahófskennd samskipti við lögreglu?
6. Hve algengt er að þeir sem dvelja hér ólöglega gerist sekir um önnur lögbrot?
Skriflegt svar óskast.