Ferill 419. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 706  —  419. mál.




Fyrirspurn


til fjármála- og efnahagsráðherra um frítekjumörk og tekjuviðmið.

Frá Bergþóri Ólasyni.


     1.      Hvaða frítekjumörk eða tekjuviðmið eru í gildi samkvæmt lögum sem hafa ekki verið uppfærð undanfarin þrjú ár eða lengur?
     2.      Í hvaða lögum koma þau fyrir, hver er fjárhæð þeirra og hvenær voru þau síðast uppfærð?
     3.      Hefur verið unnin greining innan ráðuneytisins á tekjuáhrifum þess að slík viðmið hafi staðið óbreytt?
     4.      Er í ráði að endurskoða eða uppfæra umrædd viðmið á næstu misserum?
     5.      Hver hefðu tekjuáhrif á ríkissjóð orðið þar til nú ef tekjuviðmið hefðu verið uppfærð með tilliti til vísitölu neysluverðs frá því að þau voru fest með tilliti til núgildandi upphæðar?


Skriflegt svar óskast.



Greinargerð.


    Samkvæmt ýmsum lagaákvæðum um skatta, bætur og aðrar opinberar greiðslur er kveðið á um frítekjumörk eða ákveðin tekjuviðmið sem hafa áhrif á rétt einstaklinga til greiðslna eða á fjárhæð skatta og gjalda. Þessi tekjuviðmið skipta máli í skatt- og velferðarkerfinu, bæði hvað varðar tekjuöflun hins opinbera og stöðu heimila.
    Ljóst er að ef frítekjumörk eða tekjuviðmið eru óbreytt lengi, jafnvel árum saman, getur það rýrt raunvirði þeirra vegna verðlags- og launaþróunar. Þetta getur haft áhrif á ráðstöfunartekjur einstaklinga og fjölskyldna og einnig á þá hvata sem lágu til grundvallar þegar fjárhæð var ákvörðuð og stefnt var að með viðkomandi ákvæðum.