Ferill 423. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 712 — 423. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um kostnað við skimun eftir krabbameini í ristli og endaþarmi.
Frá Rósu Guðbjartsdóttur.
1. Hver hefur verið árlegur heildarkostnaður við skimun eftir krabbameini í ristli og endaþarmi frá því slík skimun hófst?
2. Hver er kostnaður við gerð skráningarforrits ristilspeglana?
3. Hver er kostnaður við undirbúning rannsókna á FIT-hægðaprófum og við prófunarfasa eitt og tvö vegna rannsókna á þeim sýnum?
4. Hver er kostnaður við gerð fræðsluefnis vegna skimunar eftir krabbameini í ristli og endaþarmi?
5. Hver hefur verið heildarkostnaður við undirbúning skimunarverkefnisins frá árinu 2015 til dagsins í dag?
6. Hver er fjárveitingin til þessa verkefnis á árinu 2026?
7. Hver er áætluð fjárveitingin til verkefnisins næstu fimm ár?
Skriflegt svar óskast.