Ferill 425. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 721 — 425. mál.
Fyrirspurn
til félags- og húsnæðismálaráðherra um örorkubætur til erlendra ríkisborgara.
Frá Diljá Mist Einarsdóttur.
1. Hversu hárri fjárhæð námu örorkubætur árin 2020–2025?
2. Hvernig skiptust örorkubæturnar eftir kyni og aldri öryrkja?
3. Hversu há fjárhæð rann til erlendra ríkisborgara?
4. Hversu há fjárhæð rann þar af til útlendinga með alþjóðlega vernd og umsækjenda um alþjóðlega vernd?
5. Hvernig skiptist ríkisfang tveggja fyrrgreindra hópa eftir löndum?
6. Hversu hátt hlutfall beggja fyrrgreindra hópa fékk örorkubætur árin 2020–2025?
Skriflegt svar óskast.