Ferill 429. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 725  —  429. mál.




Fyrirspurn


til félags- og húsnæðismálaráðherra um endurgreidda fjárhagsaðstoð til sveitarfélaga vegna erlendra ríkisborgara.

Frá Diljá Mist Einarsdóttur.


     1.      Hversu hárri fjárhæð nam endurgreidd fjárhagsaðstoð til sveitarfélaga vegna erlendra ríkisborgara árin 2020–2025?
     2.      Hvernig skiptist fjárhagsaðstoðin eftir kyni og aldri?
     3.      Hversu há fjárhæð rann þar af til útlendinga með alþjóðlega vernd og umsækjenda um alþjóðlega vernd?
     4.      Hvernig skiptist ríkisfang fyrrgreindra hópa eftir löndum?
     5.      Hversu hátt hlutfall fyrrgreindra hópa fékk fjárhagsaðstoð frá sveitarfélögum sem ríkið endurgreiddi síðan árin 2020–2025?


Skriflegt svar óskast.