Ferill 112. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 726 — 112. mál.
3. umræða.
Nefndarálit
um frumvarp til laga um breytingu á lögum um útlendinga, nr. 80/2016 (afturköllun alþjóðlegrar verndar).
Frá 1. minni hluta allsherjar- og menntamálanefndar.
Fyrsti minni hluti fagnar því að frumvarp þetta sé lagt fram en samkvæmt markmiðum þess er því ætlað að samræma lög um útlendinga við löggjöf annars staðar á Norðurlöndum. Í óbreyttri mynd mun frumvarpið aftur á móti tæplega ná markmiðum sínum þar sem ekki er tryggt með fullnægjandi hætti að alvarleg afbrot þeirra sem hlotið hafa alþjóðlega vernd leiði af sér afturköllun verndar. Af þeim sökum leggur 1. minni hluti fram nokkrar breytingartillögur sem skerpa ákvæði frumvarpsins, skýra þau og herða á þeim úrræðum sem íslensk stjórnvöld hafa til að afturkalla vernd.
Með frumvarpinu er lagt til að heimilt verði að afturkalla alþjóðlega vernd útlendings þegar viðkomandi hefur framið alvarlegt afbrot eða ógnar öryggi ríkisins en Ísland er eina ríki Norðurlanda sem hefur ekki ákvæði í þá veru í löggjöf sinni. 1. minni hluti telur tillöguna ekki ganga nógu langt og leggur því til þá breytingu að skylt verði að afturkalla alþjóðlega vernd í slíkum tilfellum enda sé það í samræmi við útlendingalöggjöf nágrannaþjóða okkar. Ísland er aðili að Schengen-samstarfinu og þarf vegna þess að uppfylla ýmis skilyrði. Reglur um alþjóðlega vernd á Íslandi eru ekki einkamál Íslands því að þeir einstaklingar sem hafa fengið alþjóðlega vernd hér á landi geta ferðast hvert sem er innan Schengen-svæðisins.
Fyrir fullvalda ríki er mikilvægt að geta varið borgarana og samfélagið fyrir aðsteðjandi ógnum. Hluti af því er að geta afturkallað alþjóðlega vernd ef einstaklingur brýtur alvarlega gegn því samfélagi sem hefur kosið að veita viðkomandi vernd. Það eru ekki almenn mannréttindi útlendinga að fá að koma hingað til lands til að fremja afbrot. Gildar ástæður eru til afturköllunar ef um er að ræða einstakling sem er hættulegur öryggi ríkisins eða ef einstaklingur hefur hlotið endanlegan dóm fyrir alvarleg brot og er hættulegur samfélaginu. Réttlætanlegt er að í alvarlegustu brotunum hvíli skylda á stjórnvöldum að afturkalla verndina en að heimild sé til staðar í öðrum tilvikum. Þegar heimildarákvæðið á við fer fram mat í hverju tilviki fyrir sig á því hvort rétt sé að afturkalla verndina. 1. minni hluti leggur til að ákvæði frumvarpsins um afturköllun alþjóðlegrar verndar verði skýrt nánar og betur gerð grein fyrir hvaða afbrot teljist „alvarleg“ og hvenær maður getur talist „hættulegur samfélaginu“ í skilningi laganna. Því leggur 1. minni hluti til að tiltekin hegningarlagabrot séu tilgreind sérstaklega í þessu samhengi, svo sem kynferðisbrot þar sem refsing sem við brotinu liggur er fangelsi ekki skemur en eitt ár og manndráp og líkamsmeiðingar þar sem refsing sem við brotinu liggur er fangelsi allt að 16 árum eða ævilangt. Sama eigi við ef um er að ræða brot tengd skipulagðri glæpastarfsemi. Í íslensku samfélagi teljast slík brot mjög alvarleg og það er mikilvægt að mati 1. minni hluta að íslensk stjórnvöld sendi þau skýru skilaboð að brot af þessu tagi séu það alvarleg að þau geti leitt til afturköllunar alþjóðlegrar verndar.
Breytingartillaga á þskj. 671 frá Brynjari Níelssyni var lögð fram við 2. umræðu frumvarpsins en kom ekki til atkvæða. Hún var kölluð til baka og rædd inni í nefndinni milli umræðna. Eftir gestakomur var það niðurstaða meiri hluta nefndarinnar að samþykkja ekki breytingartillöguna. Vegna þeirrar niðurstöðu er það mat 1. minni hluta að þrátt fyrir að markmið og tilgangur frumvarpsins séu af hinu góða sé efni þess því marki brennt að vera of óskýrt og matskennt til að markmiðum þess sé náð í reynd. Brýnt er að löggjafinn sýni vilja sinn til að betrumbæta útlendingalöggjöfina í verki og að mati 1. minni hluta verður það ekki gert nema samþykktar verði þær breytingar á frumvarpinu sem 1. minni hluti hefur lagt til í þingskjali 717.
Alþingi, 9. febrúar 2026.
| Sigurður Örn Hilmarsson, frsm. |
Jón Pétur Zimsen. | Snorri Másson. |