Ferill 430. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 727 — 430. mál.
Fyrirspurn
til innviðaráðherra um helmingamokstur.
Frá Ingvari Þóroddssyni.
1. Telur ráðherra að helmingamokstursreglan, eins og henni er beitt samkvæmt reglum Vegagerðarinnar, tryggi sanngjarna og jafna skiptingu kostnaðar við vetrarþjónustu milli ríkis og sveitarfélaga, sérstaklega í dreifðum byggðum þar sem umfang helmingamokstursvega er mikið?
2. Hver er að mati ráðherra ábyrgð Vegagerðarinnar á hálkuvörnum á vegum þar sem helmingamokstur fer fram?
3. Sér ráðherra fyrir sér að ríkið taki að einhverju eða öllu leyti til sín aukinn hluta af kostnaði við vetrarþjónustu á vegum sem nú er sinnt samkvæmt reglu um helmingamokstur, þ.m.t. af kostnaði vegna hálkuvarna? Ef svo er, hvernig hyggst ráðherra útfæra slíka breytingu?
4. Telur ráðherra tilefni til að endurskoða 2. mgr. 44. gr. vegalaga, nr. 80/2007, þar sem heimilt er að binda vetrarþjónustu skilyrði um kostnaðarþátttöku sveitarfélaga eða hagsmunaaðila?
Munnlegt svar óskast.