Ferill 434. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 734  —  434. mál.




Fyrirspurn


til innviðaráðherra um stæðiskort.

Frá Ingvari Þóroddssyni.


     1.      Til hvaða aðgerða hyggst ráðherra grípa til að tryggja að sjálfvirk kerfi geti greint og virt réttindi handhafa stæðiskorts og þannig komið í veg fyrir að lögmætir handhafar verði ranglega rukkaðir?
     2.      Telur ráðherra koma til greina að sýslumenn veiti innheimtuaðilum aðgang að upplýsingum um handhafa stæðiskorta?
     3.      Telur ráðherra núgildandi lagaramma og reglugerðir nægilega skýr til að mæta þessum tæknilega vanda? Ef svo er ekki, hvaða breytingar liggja fyrir eða eru fyrirhugaðar?


Munnlegt svar óskast.