Ferill 437. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 737 — 437. mál.
Fyrirspurn
til innviðaráðherra um stofnun nýs innviðafélags.
Frá Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur.
1. Hvernig verður fjármögnun nýs innviðafélags, sem ráðherra hefur kynnt áform um að stofna, háttað?
2. Hvaða eignir kemur til greina að setja inn í innviðafélagið?
3. Mun hið nýja félag stofna og halda utan um smærri innviðafélög og þá hvert verkefni fyrir sig?
4. Undir hvaða ráðherra mun hið nýja innviðafélag heyra?
5. Hverjar eru frekari áætlanir um boðað innviðafélag, t.d. tímarammi?
Munnlegt svar óskast.