Ferill 441. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 741  —  441. mál.




Fyrirspurn


til mennta- og barnamálaráðherra um Vetraríþróttamiðstöð Íslands og þjóðarleikvang vetraríþrótta.

Frá Sindra S. Kristjánssyni.


     1.      Liggja fyrir tillögur um störf og framtíðarsýn fyrir Vetraríþróttamiðstöð Íslands (VMÍ) á grundvelli samnings ráðherra og stjórnar VMÍ sem undirritaður var í febrúar 2024?
     2.      Hefur farið fram vinna í ráðuneytinu sem miðar að því að skilgreina þjóðarleikvang vetraríþrótta á Íslandi?


Skriflegt svar óskast.