Ferill 442. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 742  —  442. mál.




Fyrirspurn


til atvinnuvegaráðherra um bílastæðagjöld á ferðamannastöðum.

Frá Sigmundi Erni Rúnarssyni.


     1.      Á hve mörgum ferðamannastöðum innheimtir ríkissjóður gjald fyrir bílastæði? Hvenær hófst umrædd gjaldtaka og hvert er bílastæðagjald ríkissjóðs að meðaltali á þessum stöðum?
     2.      Á hve mörgum ferðamannastöðum innheimta einkaaðilar gjald fyrir bílastæði? Hvenær hófst umrædd gjaldtaka og hvert er bílastæðagjald einkaaðila að meðaltali á þessum stöðum?
     3.      Hvaða reglur gilda um dráttarvexti og aðrar aukaálögur á vangreidd bílastæðagjöld, bæði þegar um er að ræða gjöld á vegum ríkisins og þegar einkaaðilar standa að innheimtu?


Skriflegt svar óskast.