Ferill 346. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 743 — 346. mál.
Svar
heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Rósu Guðbjartsdóttur um geðheilsuteymi heilsugæslunnar.
1. Hversu mörgum einstaklingum hefur verið vísað úr þjónustu á vegum geðheilsuteyma heilsugæslunnar frá því þau tóku til starfa? Hvaða ástæður liggja að baki slíkum ákvörðunum og hvernig eru þær rökstuddar?
Í upphafi er rétt að taka fram að ekki er ljóst af fyrirspurninni hvað nákvæmlega er átt við með því að einstaklingum hafi verið „vísað úr þjónustu“ geðheilsuteyma heilsugæslunnar. Óljóst er hvort þar sé átt við einstaklinga sem fá ekki aðgang að þjónustu, uppfylla ekki viðmið teymanna eða einstaklinga sem ljúka eða hætta þjónustu af öðrum ástæðum. Skortur á skýrri skilgreiningu á hugtakinu gerir erfitt að svara fyrirspurninni með tölulegum hætti.
Almennt gildir þó að frávísanir úr þjónustu geðheilsuteyma heilsugæslunnar eru sjaldgæfar. Ákvarðanir um að taka einstakling ekki í þjónustu eða ljúka þjónustu eru ávallt teknar á faglegum grundvelli, rökstuddar og skráðar í sjúkraskrá viðkomandi einstaklings, í samræmi við klínísk viðmið og faglegt mat .
| Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins | Almennum geðheilsuteymum (HH) hefur frá upphafi vega verið ætlað að þjónusta einstaklinga sem þurfa á þverfaglegri geðþjónustu að halda og hafa náð 18 ára aldri. Við skipulag og uppbyggingu á þjónustu almennu geðheilsuteymanna hefur verið leitast við að skapa meðferðarframboð sem nýtist sem flestum. Forsenda samþykkis inntöku í geðheilsuteymi er að þverfagleg meðferðarþörf sé í reynd til staðar og að einstaklingar hafi færni, getu og vilja til að nýta sér slíka þjónustu, óháð því hver geðgreiningin er eða hvort um taugaþroskaröskun er að ræða. Ekki er til tölfræði fyrir einstaklinga sem vísað er úr þjónustu. Ástæður synjana eru margvíslegar en við synjun veita geðheilsuteymi HH ávallt skriflega ráðgjöf til fagaðila sem senda tilvísun um hvaða meðferð er talin æskileg, við hæfi og hvert skuli vísa. Tekin er fagleg ákvörðun um synjun á þverfaglegum inntökufundum teymanna þar sem byggt er á upplýsingum úr sjúkraskrá, frá tilvísanda og oft á tíðum frá einstaklingnum sjálfum. Hver tilvísun er þannig rækilega rýnd af fagaðilum áður en hún er tekin fyrir í inntökuteymi til úrlausnar. |
| Heilbrigðisstofnun Vesturlands | Hefur frá upphafi vísað 78 einstaklingum úr þjónustu og útskrifað 178 að lokinni meðferð. Helstu ástæður frávísana eru endurtekin fjarvera eða skortur á svörun, afþökkuð þjónusta, óviðunandi eða ógnandi hegðun, virkur vímuefnavandi, beiðnir sem falla utan verksviðs teymisins (svo sem ADHD-greiningar), samhliða virk meðferð annars staðar, flutningur af þjónustusvæði eða mat á því að ekki sé þörf fyrir þverfaglega þjónustu. |
| Heilbrigðisstofnun Vestfjarða | Hefur frá upphafi (apríl 2020) einungis vísað tveimur tilvísunum frá. Í báðum tilvikum var mat teymisins að um væri að ræða eðlileg viðbrögð við erfiðum lífsaðstæðum fremur en geðrænan vanda. Viðkomandi var þá vísað í önnur, viðeigandi úrræði. |
| Heilbrigðisstofnun Norðurlands | Ekki eru til tölur frá upphafi þjónustu en á árinu 2025 hefur átta einstaklingum verið vísað úr þjónustu. Helstu ástæður eru skortur á þátttöku í meðferð, versnun á líðan, sem krefst hærra þjónustustigs, óljós eða vanmetinn vímuefnavandi við innritun eða langvarandi meðferð án árangurs. Þá er ávallt leitast við að vísa einstaklingi áfram í viðeigandi úrræði. |
| Heilbrigðisstofnun Austurlands | Hefur ekki vísað neinum einstaklingi úr þjónustu (vísa ekki neinum hópum frá þjónustu). Meðferð lýkur annaðhvort með útskrift að lokinni meðferð eða með tímabundinni tilfærslu í þriðju línu þjónustu, svo sem á geðdeildir eða endurhæfingarstofnanir. Að slíkri meðferð lokinni getur geðheilsuteymið tekið við einstaklingnum aftur. Einu skiptin sem vísað er frá er þegar óskað er eftir meðferð sem hefur nýlega verið lokið (dæmi: sálfræðimeðferð sem er nýlega lokið og óskað eftir slíkri meðferð aftur). Á árunum 2024–2025 var 31 einstaklingi vísað úr þjónustu, 11 af þeim nýttu ekki þjónustu og 20 af þeim afþökkuðu hana. Ákvarðanir byggja á faglegu mati, m.a. vegna framgangs meðferðar, nýtingu þjónustu og öðrum klínískum forsendum sem teknar eru ákvarðanir um á þverfaglegum teymisfundum. |
| Heilbrigðisstofnun Suðurnesja | Tók formlega til starfa 2022. Frá þeim tíma hefur 22 einstaklingum verið vísað úr þjónustu. Algengustu frávísanir eru: virkur vímuefnavandi, kominn í aðra þjónustu, afþakkaði þjónustu, mætti ekki í matsviðtal, illa unnin tilvísun eða óljóst hvers er óskað, fyrstu línu þjónusta ekki fullreynd eða óskað eftir að teymið taki að sér greiningarferli ADHD og einhverfu (sem teymið sinnir ekki). |
2. Hversu margir þeirra sem vísað var úr þjónustu hafa jafnframt fengið einhverfugreiningu eða hjá hve mörgum leikur grunur á einhverfu?
| Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins | Engum hefur verið vísað úr þjónustu á grundvelli einhverfugreiningar. |
| Heilbrigðisstofnun Vesturlands | Einhverfa eða grunur um einhverfu er ekki frávísunarástæða í geðheilsuteymi HVE. Ekki liggja fyrir samanteknar tölur um hversu margir þeirra sem vísað var úr þjónustu höfðu einhverfugreiningu eða grun um einhverfu, þar sem slíkt er ekki kerfisbundið skráð í þessu samhengi. |
| Heilbrigðisstofnun Vestfjarða | Engum er vísað frá vegna geðræns vanda eða einhverfu. |
| Heilbrigðisstofnun Norðurlands | Af þeim átta sem var vísað úr þjónustu árið 2025 var einn með staðfesta einhverfugreiningu. Ekki er vísað frá vegna einhverfu en metið er hvort þjónusta teymisins nýtist einstaklingum með fullnægjandi hætti. |
| Heilbrigðisstofnun Austurlands | Á ekki við. Í dag eru 45 einstaklingar í þjónustu, þar af sex með einkenni á einhverfurófi og þrír í greiningarferli. |
| Heilbrigðisstofnun Suðurlands | Á tímabilinu 2024–2025 hefur fimm tilvísunum verið synjað á grundvelli þroskaröskunar. Um ræðir einstaklinga með F.70-greiningu og metnir í þörf fyrir sérhæfðari aðkomu út frá sinni greiningu. Á einnig við um einstaklinga sem búsettir eru í búsetukjarna eða sólarhringsþjónustu. Engum hefur verið vísað úr þjónustu á grundvelli einhverfu. Ekki liggja fyrir tölur um grun um einhverfu en slíkur grunur leiðir ekki til frávísunar heldur aðlögunar á meðferð. |
| Heilbrigðisstofnun Suðurnesja | Af þeim 22 einstaklingum sem vísað var úr þjónustu höfðu tveir staðfesta einhverfugreiningu. Oft leikur grunur á að einstaklingar séu með einhverfu eða á einhverfurófi en teymið leggur ekki mat á það sérstaklega. |
3. Hversu mörgum einstaklingum hefur verið synjað um þjónustu á vegum geðheilsuteyma heilsugæslunnar frá því þau tóku til starfa? Hversu margir þeirra hafa jafnframt fengið einhverfugreiningu eða hjá hve mörgum leikur grunur á einhverfu?
| Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins | Frá árinu 2020 hefur 1.997 einstaklingum verið synjað um þjónustu hjá geðheilsuteymum Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins sem jafngildir um 40,9% af tilvísunum. Ekki liggja fyrir tölulegar upplýsingar um hversu margir þeirra hafa fengið einhverfugreiningu eða hjá hve mörgum leikur grunur á einhverfu. |
| Heilbrigðisstofnun Vesturlands | Einhverfa eða grunur um einhverfu er ekki grundvöllur synjunar um þjónustu. Horft er til þess hvort einstaklingur geti nýtt sér þá þjónustu sem teymið hefur upp á að bjóða. Óskað var eftir ítarlegri svörum um frávísun vegna annarra þátta en einhverfu, ekki er hægt að greina upplýsingarnar nánar í kerfinu. |
| Heilbrigðisstofnun Vestfjarða | Einstaklingum er ekki synjað um þjónustu á grundvelli einhverfugreiningar eða gruns um einhverfu. Einstaklingar með slíkar greiningar eða einkenni eru í virkri þjónustu hjá teyminu. |
| Heilbrigðisstofnun Norðurlands | Árið 2025 var 16 einstaklingum synjað um þjónustu af alls 145 tilvísunum. Ekki liggja fyrir tölur um hversu margir þeirra höfðu einhverfugreiningu eða grun um einhverfu. Slíkar synjanir byggja ekki á greiningu heldur mati á því hvort þjónusta teymisins henti þjónustuþörfum viðkomandi. |
| Heilbrigðisstofnun Austurlands | Einum einstaklingi hefur verið synjað um þjónustu, þar sem skemmri tími en sex mánuðir var liðinn frá útskrift eftir langa meðferð. Enginn grunur var um einhverfu í því tilviki. |
| Heilbrigðisstofnun Suðurlands | Á árunum 2024–2025 var 257 tilvísunum synjað. Fjöldi og ástæður synjunar á þjónustu eru eftirfarandi: Skammtímaendurhæfing ekki raunhæf = 28: Á við í þeim tilfellum þar sem um langvarandi og krónískan geðvanda er að ræða og viðkomandi er í þörf fyrir langtímaeftirfylgd. Vísað í 1. stigs þjónustu = 119: Á við í þeim tilfellum þar sem 1. stigs þjónusta hefur ekki verið fullreynd eða geðvandi einstaklingsins er metinn þess eðlis að ekki sé þörf á 2. stigs þverfaglegri geðendurhæfingu. Ófullnægjandi tilvísun = 23: Á við í þeim tilfellum þar sem tilvísun gefur ekki greinargóðar upplýsingar um greindan geðsjúkdóm, einkenni eða fyrri úrræði. VIRK = 4: Á við í þeim tilfellum sem upplýsingar gefa til kynna að einstaklingur glími ekki við geðvanda þar sem talin er þörf á 2. stigs geðendurhæfingu og starfstengd endurhæfing er metin hentugra úrræði. Nú þegar í viðeigandi úrræði = 11: Á við í þeim tilfellum þar sem einstaklingurinn er nú þegar í þverfaglegri þjónustu, t.d. þjónustu geðlæknis og sálfræðings, og óljóst að hvaða leyti þörf sé á aðkomu teymis. Geðheilsuteymi taugaþroskaraskana = 5: Á við í þeim tilfellum þar sem einstaklingar eru með greinda þroskaröskun, F.70.0-greiningu og metnir í þörf fyrir sérhæfða aðkomu vegna þroskaröskunar. Á einnig við um einstaklinga sem búsettir eru í búsetukjarna með sólarhringsþjónustu. Vísað til 3. stigs þjónustu = 3: Á við í þeim tilfellum sem vandi einstaklingsins er metinn þess eðlis að þörf sé á innlögn eða frekari uppvinnslu innan 3. stigs þjónustu. ADHD-teymi = 5: Á við í þeim tilfellum þar sem teyminu berst tilvísun og eingöngu er verið að óska eftir ADHD-greiningu eða lyfjameðferð vegna ADHD. DAM-teymi = 2: Á við í þeim tilfellum sem vanda einstaklings er lýst sem miklum tilfinningavanda sem áður hefur verið meðhöndlaður án árangurs og/eða sérhæfð meðferðarnálgun með aðferðafræði DAM er metið hentugasta úrræðið. Vísað til félagsþjónustu = 1: Á við í þeim tilfellum þar sem vandi einstaklingsins er fyrst og fremst félagslegur en ekki geðrænn. Afþakkar þjónustu í matsviðtali = 1: Á við í þeim tilfellum þar sem einstaklingurinn afþakkar frekara matsferli á vegum geðheilsuteymisins í kjölfar matsviðtals. Vísað til geðlæknis á stofu = 1: Á við í þeim tilfellum þar sem ekki er metin þörf á 2. stigs þverfaglegri geðendurhæfingu en viðkomandi er í þörf fyrir aðkomu geðlæknis vegna lyfjamála. Náðist ekki í skjólstæðing til að boða í viðtal = 1: Á við í þeim tilfellum þar sem ekki náðist í einstakling með neinum leiðum til að boða í viðtal. |
| Heilbrigðisstofnun Suðurlands | Vísað til Sigurhæða 1: Á við í þeim tilfellum sem vandi einstaklings benti til þarfar fyrir sérhæft úrræði í kjölfar kynbundins ofbeldis. Vísað til endurhæfingar hjá Krabbameinsfélagi Árnessýslu = 1: Á við í þeim tilfellum þar sem einstaklingur upplifði vanlíðan í kjölfar krabbameinsmeðferðar. Geðvandi var ekki metinn þess eðlis að þörf væri á 2. stigs geðendurhæfingu og vísað í viðeigandi stuðning. Þjónusta fullreynd = 5: Á við í þeim tilfellum þar sem einstaklingnum er vísað til þjónustu teymis í annað eða þriðja sinn, hefur lokið þjónustu og þjónusta teymis metin fullreynd. 2. stigs geðendurhæfing ekki tímabær = 2: Á við í tilfellum þar sem einstaklingur er þegar í uppvinnslu innan Landspítala eða í greiningarferli og niðurstöður liggja ekki fyrir. Á einnig við ef einstaklingur er í vímuefnameðferð. Virkur fíknivandi = 3: Á við í þeim tilfellum þar sem einstaklingur er í virkri neyslu fíkniefna eða misnotkun áfengis og metið að aðkoma fíkniúrræða sé mikilvæg áður en þjónusta geðheilsuteymis er talin líkleg til árangurs. Vísað til sálfræðiþjónustu mæðraverndar = 3: Á við í þeim tilfellum sem einstaklingur er metinn í þörf fyrir aðkomu sálfræðings vegna vanlíðunar á meðgöngu. Brottfluttir = 2: Á við í þeim tilfellum þar sem einstaklingur var fluttur af þjónustusvæði HSU þegar boðað var til viðtals. |
| Heilbrigðisstofnun Suðurnesja | Frá upphafi hefur a.m.k. 75 einstaklingum verið synjað um þjónustu, af þeim höfðu a.m.k. sex staðfesta einhverfugreiningu. Einhverfa er ekki synjunarástæða og ákvarðanir eru alltaf byggðar á faglegu mati á því hvort þjónustan henti þjónustuþörfum viðkomandi. |