Ferill 339. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 746 — 339. mál.
Svar
samstarfsráðherra Norðurlanda við fyrirspurn frá Dagbjörtu Hákonardóttur um norrænt samstarf.
1. Hvernig vinnur ríkisstjórnin að því markmiði sem Norðurlandaráð og Norræna ráðherranefndin hafa sett sér að Norðurlönd verði samþættasta og samkeppnishæfasta svæði heims fyrir árið 2030?
Forsætisráðherrar Norðurlanda samþykktu sameiginlega framtíðarsýn fyrir norrænt samstarf árið 2019, sem nefnd er Framtíðarsýn okkar 2030, og miðar að því að Norðurlönd verði sjálfbærasta og samþættasta svæði heims á árunum fram til 2030, með áherslu á græn, samkeppnishæf og félagslega sjálfbær Norðurlönd. Samstarfið í Norrænu ráðherranefndinni á að þjóna þessu markmiði.
Í upphafi árs 2025 tóku gildi 14 samstarfsáætlanir fyrir 12 ráðherranefndir sem gilda fyrir árin 2025–2030. Í þeim er að finna sameiginlegar áherslur, skýra forgangsröðun og markvissar aðgerðir til að uppfylla Framtíðarsýn okkar 2030. Við gerð samstarfsáætlananna var lögð áhersla á opið ferli með aðkomu annarra samstarfs- og hagaðila í norrænu samstarfi, m.a. þingmanna í Norðurlandaráði, frjálsra félagasamtaka, fulltrúa atvinnulífs o.fl. Þar áður, á tímabilinu 2021–2024, tók vinnan mið af sérstakri framkvæmdaáætlun þar sem sett voru 12 markmið undir sömu þremur stefnumótandi áherslusviðum um græn, samkeppnishæf og félagslega sjálfbær Norðurlönd.
Fulltrúar Íslands taka virkan þátt í starfi Norrænu ráðherranefndarinnar. Ráðherrar taka þátt í störfum allra 12 ráðherranefnda. Undir ráðherranefndum starfa embættismannanefndir og vinnuhópar sem fulltrúar ráðuneyta eiga sæti í og starfa þar í umboði sinna ráðherra að framkvæmd norrænnar samvinnu á viðkomandi málefnasviði. Fulltrúar Íslands í embættismannanefndum mynda norræna stýrihóp Stjórnarráðsins. Stýrihópurinn fundar reglulega á vettvangi Stjórnarráðsins til að samræma starfið innan lands og miðla upplýsingum og gegnir mikilvægu hlutverki við framkvæmd norræns samstarfs innan stjórnsýslunnar.
Skrifstofa Norrænu ráðherranefndarinnar í Kaupmannahöfn aðstoðar ráðherranefndir og löndin í framkvæmd og framþróun vinnunnar. Skrifstofan safnar reglulega saman upplýsingum um stöðu innleiðingar á Framtíðarsýn okkar 2030 og hefur m.a. fengið ráðgjafafyrirtæki til að vinna skýrslur um hvernig vinnunni hefur miðað áfram o.fl.
Þá gegnir stjórnsýsluhindranaráðið, sem skipað er fulltrúum allra landanna, mikilvægu hlutverki við að uppfylla Framtíðarsýn okkar 2030 er kemur að afnámi stjórnsýsluhindrana, þar sem mikilvægt er að borgarar Norðurlanda geti óhindrað ferðast, starfað, stundað nám og stofnað til atvinnurekstrar hvar sem er á Norðurlöndunum. Til að stuðla að þessu er mikilvægt að koma auga á og ryðja úr vegi stjórnsýsluhindrunum milli landanna og tryggja að nýjar skjóti ekki upp kollinum. Norræna stjórnsýsluhindranaráðið er lykilaðili í þessari vinnu auk góðs samstarfs og pólitísks vilja í löndunum við að leysa þau mál sem upp koma. Í þessari vinnu reynir á samstarf margra aðila á ólíkum stjórnsýslustigum, bæði á vettvangi stjórnmála og embættismanna.
2. Hefur ráðherra kannað kosti þess að framkvæma að færeyskri fyrirmynd skyldubundið mat á því hvort þingmál eða ákvarðanir geti falið í sér stjórnsýsluhindranir á norræna vísu?
Í tengslum við stjórnsýsluhindranir, sem eru hindranir eða erfiðleikar við að borgarar Norðurlanda geti óhindrað ferðast, starfað, stundað nám og stofnað til atvinnurekstrar hvar sem er á Norðurlöndunum, er mikilvægt að reyna að koma í veg fyrir að stjórnsýsluhindranir verði til, þannig að löggjöf eða reglur í löndunum séu ekki til þess fallnar að skapa erfiðleika í framkvæmd á þessum sviðum.
Kjarninn í undirbúningi löggjafar á Íslandi er það verkefni að setja saman vandaðan og skýran lagatexta á auðlæsilegu íslensku máli í samræmi við stjórnarskrá og alþjóðlegar skuldbindingar sem fellur vel að íslenskri lagahefð og gildandi lögum. Mælt er fyrir um margvísleg atriði í tengslum við þetta í samþykkt ríkisstjórnarinnar um undirbúning og frágang stjórnarfrumvarpa og stjórnartillagna, sbr. 10. gr. reglna um starfshætti ríkisstjórnar, nr. 791/2018, frá 24. febrúar 2023.
Við undirbúning stjórnarfrumvarpa þurfa ráðuneyti að gera áhrifamat vegna frumvarpa. Samantekt þess þarf að senda fjármála- og efnahagsráðuneyti til yfirferðar. Meðal þess sem þarf að gera grein fyrir er áhrif lagasetningarinnar á möguleika einstaklinga og fyrirtækja til að eiga samskipti þvert á norræn landamæri. Athugun ráðuneyta er því hluti af áhrifamati. Sjá nánar eyðublað fjármála- og efnahagsráðuneytis, „Mat á áhrifum lagasetningar“, sbr. 9. tölulið D-liðar um áhrif á möguleika einstaklinga og fyrirtækja til að eiga samskipti þvert á norræn landamæri. Með vísan til þessa má rökstyðja að framkvæmt sé fyrir fram skyldubundið mat á því hvort lagasetning feli í sér stjórnsýsluhindrun á norræna vísu.
Dæmin hafa hins vegar sýnt að ekki er hægt að sjá fyrir öll tilvik og framkvæmd. Því er mikilvægt þegar vandamál koma upp í framkvæmd að vera með ferla til að vinna að úrlausn mála sem upp koma. Þar hefur stjórnsýsluhindranaráðið mikilvægu hlutverki að gegna. Einnig þarf að vera fyrir hendi gott samstarf og pólitískur vilji í löndunum til að leysa vandamál sem upp koma í framkvæmd.