Ferill 447. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 755 — 447. mál.
Fyrirspurn
til utanríkisráðherra um fyrirætlanir Evrópusambandsins varðandi Ísland, Noreg og Grænland.
Frá Ingibjörgu Davíðsdóttur.
1. Hefur ráðherra gert athugasemdir eða mótmælt fyrirætlan Evrópusambandsins (ESB), er kemur fram í skýrslu utanríkismálanefndar Evrópuþingsins um stefnu gagnvart norðurslóðum frá nóvember 2025, þar sem stofnanir Evrópusambandsins eru hvattar til að beita sér fyrir því að Ísland, Noregur og Grænland gangi í ESB? Ef svo er ekki, hvers vegna?
2. Er umfjöllun í skýrslunni um mikilvægi náttúru- og orkuauðlinda Íslands fyrir ESB og um að ESB hyggist, með ríkisstjórn Íslands, kynna kosti mögulegrar aðildar að ESB ef Ísland virkjar umsókn sína, gerð með vitund og vilja ráðherra?
Munnlegt svar óskast.