Ferill 373. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 776 — 373. mál.
Svar
heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur um stöðu barna og ungmenna með tal- og málþroskaröskun.
1. Með hvaða hætti hefur verið unnið að úrbótum í málefnum barna og ungmenna með tal- og málþroskaröskun, byggt á þeim ábendingum og athugasemdum sem fram komu í skýrslu mennta- og menningarmálaráðherra árið 2012 um stöðu hópsins?
Í þingsályktunartillögu sem samþykkt var af Alþingi í janúar 2013 var mennta- og menningarmálaráðherra falið að endurskoða málefni barna og ungmenna með tal- og málþroskaröskun og átti endurskoðunin að leiða til markvissrar aðgerðaáætlunar í samræmi við niðurstöður skýrslunnar frá 2012. Stýrihópur mennta- og menningarmálaráðuneytis, velferðarráðuneytis og Sambands íslenskra sveitarfélaga var skipaður í júní 2013. Hópurinn vann að greiningu í víðtæku samráði við hagsmunaaðila og söfnun gagna á árunum 2013–2015. Hópurinn skilaði áfangaskýrslu í júní 2017 með fyrstu tillögu að framtíðarþjónustuferli, en óljóst er hvaða aðgerðir komust til framkvæmda eða hverju þær skiluðu.
Í maí 2014 var undirritað samkomulag milli velferðarráðuneytis og Sambands íslenskra sveitarfélaga um skiptingu ábyrgðar vegna talmeinaþjónustu við börn með framburðarfrávik, málþroskafrávik og stam og í maí 2015 var undirritaður rammasamningur milli sveitarfélaga eða stofnana þeirra og Sjúkratrygginga Íslands um talþjálfun sem veitt er af talmeinafræðingum sveitarfélaga. Enn er unnið eftir þessari ábyrgðarskiptingu.
Árið 2019 var sett ný reglugerð um skólaþjónustu sveitarfélaga við leik- og grunnskóla og nemendaverndarráð í grunnskólum, nr. 444/2019, en reglugerðin tekur af allan vafa um að börn með málþroskafrávik eigi að fá bæði greiningu og jafnvel þjálfun á vegum sveitarfélaga. Það er sett í hendur sveitarfélaganna að ákvarða fyrirkomulag þjónustunnar, en þau skulu stuðla að því að hún fari fram innan skóla.
Í maí 2022 skilaði starfshópur þriggja ráðuneyta greinargerð til heilbrigðisráðherra með tillögum um þjónustu talmeinafræðinga við börn á leik- og grunnskólaaldri. Megintillaga hópsins var að færa þjónustuna á eina hendi, þ.e. til sveitarfélaganna, til að útrýma „gráa svæðinu“ milli ríkis og sveitarfélaga. Í mars 2023 skiluðu Félag talmeinafræðinga á Íslandi, Heyrnar- og talmeinastöð Íslands og Samband íslenskra sveitarfélaga umsögn um greinargerðina og í kjölfar fundar með þáverandi heilbrigðisráðherra var ákveðið að hverfa frá tillögunni um þjónustu á einni hendi. Í stað þess var ákveðið að styrkja núverandi fyrirkomulag með áherslu á aukna samvinnu milli kerfa. Þá var skipaður starfshópur sem skilaði tillögum til ráðherra í júní 2025 og voru drög að sameiginlegri aðgerðaáætlun heilbrigðisráðherra og mennta- og barnamálaráðherra kynnt fyrir ráðherranefnd um málefni barna í september sl. Sama aðgerðaáætlun hefur farið í gegnum umsagnarferli í samráðsgátt og er unnið að lokaútgáfu hennar til birtingar.
Mikil fjölgun talmeinafræðinga hefur orðið hjá sveitarfélögum og margfaldaðist þjónustuveitingin á tímabilinu 2018–2024, sérstaklega hjá stærri sveitarfélögum. Þrátt fyrir það hefur þjónusta á vegum Sjúkratrygginga Íslands einnig aukist mikið, eða um rúm 240% á 10 ára tímabili (2014–2024). Ekki er skýrt af hverju þessi mikla aukning stafar en líklegar skýringar eru áhrif ábyrgðarskiptingar milli ríkis og sveitarfélaga sem tók gildi árið 2014, ásamt vaxandi fjölda barna með íslensku sem annað mál, skortur á snemmtækri íhlutun í ung- og smábarnavernd og leikskólum og aukin vitund foreldra.
Mönnun heilbrigðisstétta er viðvarandi vandamál. Annað hvert ár hafa 15–18 nemendur fengið inngöngu í meistaranám í talmeinafræði við Háskóla Íslands frá árinu 2010, en áður var námið einungis aðgengilegt erlendis. Alls hafa 106 einstaklingar útskrifast með meistaragráðu í talmeinafræði hérlendis frá því að fyrsti árgangurinn var útskrifaður árið 2012. Unnið er að því að koma á fót grunnnámi í talmeinafræði hérlendis sem skapar frekari möguleika til menntunar talmeinafræðinga og sérfræðinga í talmeinafræði. Jafnframt er til skoðunar að koma á námi aðstoðarmanna talmeinafræðinga sem geta sinnt þjálfun innan skóla undir handleiðslu talmeinafræðinga.
2. Hversu mörg börn og ungmenni hafa verið greind með tal- eða málþroskaröskun hér á landi á síðustu 15 árum? Hversu mörg þeirra hafa jafnframt verið greind með einhverfu? Er mögulegt að flokka hópinn eftir alvarleika raskana, þ.e. frá vægri seinkun málþroska yfir í alvarleg frávik, einstaklinga með sértækar raskanir, fötlunargreiningar eða almennan seinþroska?
Greining á tal- og málþroskaröskunum fer fram á mörgum ólíkum stöðum og eru engar samræmdar tölulegar upplýsingar til um þennan hóp, en miðað er við að algengi málþroskaröskunar sé um 7%. Árið 2023 fengu 127 börn sem komu á Geðheilsumiðstöð barna (GMB) greininguna málþroskaröskun, 160 börn árið 2024 og 192 börn árið 2025, samtals 345 börn á þriggja ára tímabili. Greiningar á röskun á einhverfurófi voru 636 á tímabilinu 2023–2025, en gögn stofnunarinnar ná ekki lengra aftur í tímann þar sem miðstöðin er einungis þriggja ára.
Einhverfa og málþroskavandi tengjast gjarnan og er miðað við að algengi einhverfu sé um 1–2%. Út frá núverandi sjúkraskrárkerfi er ekki er hægt að segja til um hversu mörg börn sem hafa verið greind með tal- og málþroskaröskun hafi einnig verið greind með einhverfu, en gera má ráð fyrir því að ákveðinn hluti þeirra barna sem hafa fengið þjónustu talmeinafræðings séu með einhverfu með seinkaðan eða óhefðbundinn málþroska á breiðu bili.
Ekki er til formleg flokkun á alvarleika málþroskavanda. Mat talmeinafræðings, sem felur í sér bæði formleg próf og klínískt mat, getur staðsett ástand viðkomandi á óformlegum mælikvarða (til að mynda „væg“, „miðlungs“ eða „alvarleg“). Birtingarmynd málþroskaröskunar og málþroskavanda er breytileg og eru áhrif vandans mismikil eftir aldri og öðrum aðstæðum barnsins.
3. Hversu mörg börn sem hafa verið greind með tal- eða málþroskaröskun bíða nú eftir þjónustu og hversu lengi hafa þau verið á biðlista?
Heilbrigðisráðherra ber ábyrgð á þeirri talmeinaþjónustu sem veitt er í gegnum Sjúkratryggingar Íslands. Innleiðing miðlægs biðlista er í vinnslu í samvinnu Sjúkratrygginga Íslands og talmeinafræðinga og er uppsetning á grunnkerfinu hafin. Lögð hefur verið áhersla á að ljúka þeirri vinnu hið fyrsta því skortur á samræmdum eða miðlægum biðlista eftir þjónustu talmeinafræðinga sem starfa samkvæmt samningi við Sjúkratryggingar Íslands gerir erfitt fyrir að skipuleggja þjónustuna þannig að stytta megi bið eftir henni. Eins og staðan er nú geta börn verið á biðlista hjá fleiri en einum talmeinafræðingi eða stofum talmeinafræðinga. Þegar Sjúkratryggingar kölluðu eftir upplýsingum frá þjónustuveitendum í október 2024 og tvítekningar höfðu verið fjarlægðar, þá voru alls 4.865 börn á biðlista eftir þjónustunni. Algengur biðtími eftir þjónustu er 2–4 ár en ekki fengust upplýsingar um hversu lengi hvert og eitt barn hafði verið á biðlista. Vert er að nefna að ekkert mat þarf að liggja til grundvallar við skráningu á biðlista, eingöngu við upphaf þjónustu og því óljóst hversu mörg af þeim börnum sem teljast nú þegar á biðlista hafa lokið þjónustu þar sem um marga ólíka biðlista er að ræða. Því er ekki hægt að fullyrða að öll börn sem nú eru skráð á biðlista eftir talmeinaþjónustu hafi fengið greiningu um mál- eða talþroskaröskun og hversu mörg þeirra eru raunverulega í þörf fyrir þá þjónustu. Því er áhersla lögð á að ljúka vinnu við miðlægan biðlista í samvinnu við talmeinafræðinga sem tryggir yfirsýn yfir eftirspurn og auðveldar skipulag og skilvirkni þjónustunnar. Gert er ráð fyrir að þeirri vinnu ljúki á fyrri hluta þessa árs.
4. Í hvaða tilvikum er þörf á aðkomu Sjúkratrygginga Íslands vegna slíkrar þjónustu?
Hvort barn eigi rétt á talmeinaþjónustu á vegum ríkis eða sveitarfélags fer eftir ábyrgðarskiptingu frá árinu 2014 sem byggir m.a. á málþroskatölu og aldri barnsins. Samkvæmt skiptingunni er gert ráð fyrir því að sveitarfélögin sinni börnum með vægari vanda, en þeim sem hafa umfangsmeiri vanda verði sinnt af sjálfstætt starfandi talmeinafræðingum. Ekki fæst greiðsluþátttaka frá Sjúkratryggingum nema barn falli undir skilmerki ábyrgðarskiptingarinnar og þarf stofnunin að staðfesta fyrri greiningu talmeinafræðings, hafi hún farið fram. Unnið er að gerð nýs samnings milli Sjúkratrygginga og sjálfstætt starfandi talmeinafræðinga þar sem áhersla er lögð á þjónustu í nærumhverfi barnsins.
5. Með hvaða hætti skiptist kostnaður af þjónustunni milli ríkis, sveitarfélaga og forráðamanna?
Heilbrigðisráðuneytið hefur ekki upplýsingar um heildarkostnað vegna talmeinaþjónustu né hvernig hann skiptist milli ríkis, sveitarfélaga og forráðamanna. Ráðuneytið getur svarað fyrir þann hluta sem snýr að ábyrgðarsviði heilbrigðisráðherra, þ.e. útgjöld Sjúkratrygginga Íslands til málaflokksins. Útgjöld Sjúkratrygginga vegna talmeinaþjónustu barna voru 630,2 m.kr. árið 2025 og þjónustan er börnum að kostnaðarlausu. Í fyrrnefndri aðgerðaáætlun um bætta talmeinaþjónustu við börn er lagt til að endurskoða ábyrgðarskiptinguna frá árinu 2014 og sérstaklega verði skoðað hvernig skuli meta börn með fjölþættari áskoranir en eingöngu málþroskaröskun og börn sem hafa annað heimamál en íslensku.