Ferill 460. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 782  —  460. mál.




Fyrirspurn


til menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra um hagræðingu í ríkisrekstri.

Frá Árna Helgasyni.

                        
     1.      Hversu mikil hagræðing hefur átt sér stað í ráðuneytinu nú þegar á grundvelli tillagna starfshóps forsætisráðherra til ríkisstjórnar eftir samráð við almenning sem skilað var 4. mars 2025? Í hverju felst hagræðingin, sundurliðað eftir málaflokkum og undirstofnunum?
     2.      Hvaða hagræðing er áætluð vegna tillagnanna á þessu ári og í hverju felst sú hagræðing, sundurliðað eftir málaflokkum og undirstofnunum?
         

Skriflegt svar óskast.