Ferill 478. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 800 — 478. mál.
Fyrirspurn
til atvinnuvegaráðherra um vinnu við breytingar á búvörulögum.
Frá Ingibjörgu Davíðsdóttur.
1. Hver var kostnaður við aðkeypta ráðgjöf eða aðra þjónustu vegna breytinga á búvörulögum frá 1. janúar 2024 til 1. febrúar 2026? Spurt er um heildarkostnað við innlenda og erlenda ráðgjöf og aðra þjónustu, sundurliðaðan eftir aðilum sem þjónustan var keypt af og starfsemi.
2. Hvað hefur falist í slíkri ráðgjöf/þjónustu?
3. Var einhver utanaðkomandi þjónusta eða ráðgjöf þegin án greiðslu yfir sama tímabil? Ef svo er, frá hvaða aðilum?
4. Hve margir fundir voru haldnir í tengslum við breytingar á búvörulögum á sama tímabili? Hvar voru þeir haldnir, hvenær og hverjir sátu fundina?
Skriflegt svar óskast.