Ferill 232. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 804  —  232. mál.

2. umræða.


Nefndarálit með breytingartillögu


um frumvarp til laga um breytingu á lögum um grunnskóla, nr. 91/2008 (símar og snjalltæki).

Frá 1. minni hluta allsherjar- og menntamálanefndar.


Umfjöllun nefndarinnar.
Heimild til að kveða á um notkun snjallsíma og snjalltækja í reglugerð.
    Fyrsti minni hluti telur mikilvægt að settar verði skýrar reglur sem mynda nauðsynlegan ramma um það hvernig fara eigi með snjallsíma og snjalltæki í skólastarfi. Fyrsti minni hluti telur þó rétt að árétta eftirfarandi atriði í tengslum við umfjöllun nefndarinnar.

Samráð við nemendur og skóla.
    Fyrsti minni hluti tekur undir ábendingar umsagnaraðila um nauðsyn samráðs við nemendur og skóla. Telur 1. minni hluti brýnt að við útfærslu reglugerðarinnar verði haft samráð við skólasamfélagið. Þá sé mikilvægt að byggt verði á þeirri vinnu sem hefur þegar átt sér stað í mörgum grunnskólum sem hafa sett sér reglur eða viðmið um notkun snjallsíma. Fyrsti minni hluti telur afar mikilvægt að í reglugerðinni komi fram að snjallsímar verði ekki innan seilingar fyrir nemendur á skólatíma og að nemendur hafi aðgang að geymslustað þar sem þeir geta geymt snjallsíma sína á skólatíma. Það er margrannsakað og hefur verið sýnt fram á að það veldur verulegri truflun fyrir nemendur að vita af mögulegum tilkynningum í snjallsímanum. Einskiptiskostnaður kann að skapast vegna kaupa á aðgengilegri geymslu fyrir snjallsíma og ber að hafa það í huga og kostnaðargreina.
    Fyrsti minni hluti telur einnig nauðsynlegt að samhliða reglugerð um notkun snjallsíma og snjalltækja hugi sveitarfélög og skólar að aukinni afþreyingu fyrir nemendur í hléum, m.a. spilum, borðtennisborðum, góðum skólalóðum og að íþróttasalir skólanna verði opnir í hádegishléum. Mun meiri líkur eru á því að innleiðing heppnist snurðulaust ef þessi atriði eru í lagi frá fyrsta degi.
    Við umfjöllun nefndarinnar um málið fékk nefndin á sinn fund fulltrúa frá Ungheillum, ungmennaráði Barnaheilla, sem skiluðu jafnframt inn umsögn um málið. Fram komu mikilvæg sjónarmið varðandi afstöðu barna og ungmenna til málsins, t.d. tilhneiging barna og ungmenna til að ánetjast smáforritum í snjallsímum.
    Fyrsti minni hluti telur raunveruleika ungmenna styrkja þá skoðun að snjallsímar eigi ekki að vera innan seilingar á skólatíma. Grunnskólinn er skyldunámsskóli og foreldrar eiga að geta verið öruggir um það að skólar séu snjallsímalausir á skólatíma. Grunnskólar eiga snjalltæki sem hægt er að nýta í hófi þegar kennsla krefst þess.

Undanþágur frá takmörkun við notkun snjallsíma og snjalltækja í skólum.
    Í tengslum við ábendingar í umsögnum Þroskahjálpar og Barnaheilla um að reglur um símanotkun og snjalltæki megi ekki leiða til þess að börn verði jaðarsett sem reiða sig á tækin til samskipta og náms. Fyrsti minni hluti tekur fram að ekkert barn á að þurfa að koma með snjallsíma í einkaeigu í skyldunámsskóla til að sleppa við jaðarsetningu. Skólar eiga að útvega öll þau tæki sem nemendur þurfa við nám sitt. Snjallsímar eru ekki lausn hvað félagslega einangrun barna varðar. Taka verður á þeim vanda um leið og hann birtist en ekki gefast upp fyrir honum og ekki sökkva börnum dýpra inn í hinn rafræna heim snjallsíma.
    Fyrsti minni hluti tekur fram að reglugerðinni verði ekki ætlað að útiloka kennslufræðileg snjalltæki úr skólastarfi heldur verði markmið hennar að tryggja jafnræði milli skóla, styrkja skólastjórnendur og faglegt skóla- og frístundastarf, og stuðla að jákvæðu og öruggu skólaumhverfi þar sem börn geta einbeitt sér að námi, þroskast og styrkt félagsleg samskipti.

Fræðsla um áhrif af notkun snjallsíma og samfélagsmiðla.
    Fyrsti minni hluti tekur undir umsögn Barnaheilla þar sem fjallað er um að símabann á skólatíma megi ekki verða til þess að stjórnvöld dragi úr aðgerðum til að fræða börn, foreldra og kennara um ábyrga notkun og örugga umgengni við snjalltæki og netið. Fyrsti minni hluti telur það vera grundvallarforsendu fyrir því að tryggja heilbrigða og örugga notkun barna og ungmenna á snjallsímum og snjalltækjum að auka fræðslu og forvarnir. Því tengdu þurfi jafnframt að eiga sér stað nánari stefnumótun hvað varðar aðgengi barna að samfélagsmiðlum og hvernig megi umgangast tæknina á öruggan hátt.
    Fyrsti minni hluti telur mikilvægt að áður en reglugerð um snjallsíma og snjalltæki í grunnskólum verði kláruð skuli mennta- og barnamálaráðuneyti fara í mikla almenna fræðslu um hvers vegna snjallsímar eigi ekki heima í grunnskólum á skólatíma. Þar ætti að leggja áherslu á þá truflun sem snjallsímar valda ef þeir eru innan seilingar fyrir nemendur og hvaða áhrif sú truflun hefur á námsárangur og aga. Ekki síst ætti fræðslan að fjalla um félagsfærni og mikilvægi hennar fyrir alla, en félagsleg einangrun í netheimum snjallsíma er raunveruleg og vaxandi. Jafnframt eigi fræðslan að fjalla um þau neikvæðu áhrif sem smáforrit snjallsímanna eru talin hafa á heilsu allra, hvað þá á börn og ungmenni þar sem framheili þeirra er enn ekki fullþroskaður.
    Eftirfylgd við innleiðingu reglugerðarinnar er nauðsynleg og sveitarfélög ábyrg fyrir samræmdri áframhaldandi fræðslu og eftirfylgd. Án eftirfylgdar er innleiðingu reglugerðar um notkun snjallsíma og snjalltækja stefnt í voða. Fyrsti minni hluti telur mikilvægt að samræmis sé gætt hvað fræðslu og eftirfylgd varðar þannig að nemendur í skyldunámi njóti jafnræðis. Þá hafa ýmsir aðilar, svo sem Heimili og skóli, Netvís, SAFT og heilsugæslustöðvar, verið með fræðslu sem hægt er að nýta.
    Fyrsti minni hluti telur ljóst að um er að ræða verkefni sem þarf ávallt að byggja á samvinnu heimila og skóla auk þess að snerta ýmis svið og marga aðila. Þó má ekki gleyma því að um skyldunám er að ræða og hlutverk grunnskólans er meðal annars að skapa öllum eins jöfn tækifæri og kostur er. Að því virtu skiptir miklu máli að tæki eins og snjallsímar í einkaeigu séu ekki hluti af námi grunnskólabarna.

Breytingartillögur.
    Fyrsti minni hluti leggur til breytingu á fyrirsögn frumvarpsins. Telur hann að réttara sé að kveðið verði á um snjallsíma í stað síma.
    Að framangreindu virtu leggur 1. minni hluti til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGU:


    Fyrirsögn frumvarpsins orðist svo: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um grunnskóla, nr. 91/2008 (snjallsímar og snjalltæki).

Alþingi, 19. febrúar 2026.

Jón Pétur Zimsen,
frsm.
Sigurður Örn Hilmarsson. Snorri Másson.