Ferill 482. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 805 — 482. mál.
Fyrirspurn
til utanríkisráðherra um nýtt sendiráð Íslands í Madríd.
Frá Ingibjörgu Davíðsdóttur.
Hver er heildarkostnaður við opnun sendiráðs Íslands í Madríd? Svar óskast sundurliðað eftir öllum tilfallandi kostnaði frá því að ákvörðun var tekin um opnun, þ.m.t. við embættisbústað, sendiráð, flutninga, ráðgjöf og annað það sem tengist opnun sendiráðsins.
Skriflegt svar óskast.