Ferill 483. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 806 — 483. mál.
Fyrirspurn
til fjármála- og efnahagsráðherra um vegakerfið og ráðstöfun kílómetragjalds.
Frá Bryndísi Haraldsdóttur.
1. Hversu stórt hlutfall vegakerfisins, viðhalds þess og nýfjárfestinga er á forræði ríkisins annars vegar og sveitarfélaga hins vegar?
2. Telur ráðherra rétt að hluti af tekjum ríkissjóðs vegna álagningar kílómetragjalds renni til sveitarfélaga í ljósi þess hve stór hluti vegakerfisins er á forræði þeirra?
Skriflegt svar óskast.