Ferill 484. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 807 — 484. mál.
Fyrirspurn
til atvinnuvegaráðherra um fæðuöryggi.
Frá Ingibjörgu Davíðsdóttur.
1. Telur ráðherra að þjóðaröryggi verði ekki tryggt án fæðuöryggis og að í fæðuöryggi felist hæfni samfélags til að framleiða, vinna, dreifa og geyma matvæli með traustum grunninnviðum sem haldast órofnir þegar á reynir? Ef svo er, hvernig hyggst ráðherra vinna að því að tryggja fæðuöryggi landsins?
2. Hyggst ráðherra gera heildstæða landsáætlun um hvernig unnt verði að tryggja fæðuöryggi þjóðarinnar við hvaða aðstæður sem upp kunna að koma, líkt og lagt er til í þingsályktunartillögu um fæðuöryggi og innlenda matvælaframleiðslu sem lögð var fram á yfirstandandi þingi ( 67. mál)? Ef svo er, hvaða alþjóðlegu viðmið sér ráðherra fyrir sér að leggja til grundvallar við gerð slíkrar áætlunar?
3. Telur ráðherra mikilvægt að efla innlenda matvælaframleiðslu til að tryggja fæðuöryggi þjóðarinnar?
4. Telur ráðherra æskilegt að greina á milli fæðuöryggis og neyðarbirgða?
Skriflegt svar óskast.