Ferill 485. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 808 — 485. mál.
Fyrirspurn
til utanríkisráðherra um embættisbústaði.
Frá Ingibjörgu Davíðsdóttur.
1. Hver er fjöldi embættisbústaða fastafulltrúa/aðalræðismanna/sendiherra í utanríkisþjónustu Íslands og hvar eru þeir staðsettir?
2. Hver var heildarrekstrarkostnaður embættisbústaða Íslands á tímabilinu 2022–2025? Svar óskast sundurliðað eftir árum, bústöðum og rekstrarliðum.
3. Hvaða embættisbústaðir eru í eigu íslenska ríkisins og hvert er fasteignamat þeirra?
4. Hvaða embættisbústaðir eru leigðir og hver var ársleiga þeirra á tímabilinu 2022–2025? Svar óskast sundurliðað eftir embættisbústöðum og árum.
5. Hver hefur kostnaður við ráðgjöf og annar umsýslukostnaður við sölu og kaup embættisbústaða verið frá árinu 2022 til dagsins í dag? Svar óskast sundurliðað eftir embættisbústöðum og árum.
6. Hafa einhverjir embættisbústaðir verið seldir frá árinu 2022 til dagsins í dag? Ef svo er, hverjir og hvert var söluandvirði þeirra?
a. Hverjar eru ástæður sölu þessara eigna?
b. Hvernig er menningarsagan varðveitt þegar bústaðir eru seldir sem hafa frá upphafi sinnt utanríkisþjónustu Íslands?
7. Hafa embættisbústaðir verið keyptir frá árinu 2022 til dagsins í dag? Ef svo er, hvert var kaupverð þeirra, hvar eru þeir staðsettir og hvernig er staðsetning þeirra valin?
8. Stendur til að selja eða kaupa bústaði á næstunni?
Skriflegt svar óskast.