Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 813, 157. löggjafarþing 174. mál: slysatryggingar almannatrygginga (sjúkrahjálp).
Lög nr. 16 3. mars 2026.

Lög um breytingu á lögum um slysatryggingar almannatrygginga, nr. 45/2015 (sjúkrahjálp).


1. gr.

     Orðið „sjúkrahjálp“ í 9. gr. laganna fellur brott.

2. gr.

     10. gr. laganna fellur brott, ásamt fyrirsögn.

3. gr.

     Orðið „sjúkrahjálpar“ í 1. málsl. 2. mgr. 15. gr. laganna fellur brott.

4. gr.

     Lög þessi öðlast þegar gildi.
     Þrátt fyrir 1. mgr. skal greiða kostnað vegna sjúkrahjálpar sem fellur til vegna bótaskyldra slysa sem eiga sér stað fram að gildistöku laga þessara, með þeim takmörkunum sem fram komu í 4. mgr. 10. gr. laganna. Kostnaður vegna sjúkrahjálpar greiðist ekki vegna slysa sem eiga sér stað eftir gildistöku laga þessara heldur fer greiðsluþátttaka hins slasaða eftir almennum reglum um greiðsluþátttöku sjúkratryggðra í þeim kostnaði sem sjúkrahjálp tók til.

Samþykkt á Alþingi 19. febrúar 2026.