Ferill 146. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 818 — 146. mál.
2. umræða.
Nefndarálit
um frumvarp til laga um staðfestingu ríkisreiknings 2024.
Frá meiri hluta fjárlaganefndar.
Nefndin fékk fulltrúa fjármála- og efnahagsráðuneytis til að kynna frumvarpið og svara spurningum nefndarmanna. Guðmundur B. Helgason ríkisendurskoðandi og aðrir fulltrúar Ríkisendurskoðunar gerðu grein fyrir endurskoðunarskýrslu stofnunarinnar vegna ríkisreiknings 2024. Fulltrúar Vegagerðarinnar komu á fund nefndarinnar og gerðu grein fyrir vinnu stofnunarinnar í tengslum við eignamat á vegakerfinu. Nefndin taldi ekki ástæðu til að kalla eftir umsögnum um málið.
Samstæðuuppgjör ríkissjóðs.
Nú er í annað sinn birtur samstæðureikningur ríkissjóðs sem hefur verið eitt af meginmarkmiðum laga um opinber fjármál allt frá gildistöku þeirra fyrir tíu árum. Reikningurinn tekur til alls A-hluta ríkissjóðs auk B- og C-hluta. Samstæðureikningurinn tekur til yfirlits um afkomu, efnahagsreiknings, sjóðstreymis, yfirlits um breytingu eigin fjár og starfsþáttayfirlits ásamt skýringum.
Reikningsskilareglur byggjast á alþjóðlegum reikningsskilastöðlum (IPSAS) með frávikum sem gerð er grein fyrir í skýringu 2 með reikningnum. Í ríkisreikningi skal gera grein fyrir því hvaða atriðum staðlanna er ekki fylgt, ástæðum þess og áhrifum á afkomu og fjárhag. Reikningsskilaráð ríkisins hefur heimild samkvæmt lögum til að fresta innleiðingu einstakra staðla tímabundið. Sú heimild hefur verið nýtt öll árin frá samþykkt laganna og tekur núna til fjögurra staðla. Í ríkisreikningi fyrir árið 2023 náði frestunin til fimm staðla. Munurinn liggur í því að nú er búið að innleiða staðal IPSAS 13 um leigusamninga.
Helstu niðurstöður ríkisreiknings.
Efnahagsreikningur ríkisins sýnir eignir sem nema samtals 5.983 ma.kr. á móti skuldum sem nema 5.815 ma.kr. Eigið fé er því samtals 168 ma.kr. og lækkar um 40 ma.kr. á milli ára. Eignir hækka um 370 ma.kr. en skuldir um 410 ma.kr. milli ára. Í samstæðureikningnum hefur innbyrðis færslum milli ríkisaðila verið eytt bæði úr rekstri og efnahag.
Ef eingöngu er skoðaður efnahagur A1-hluta ríkissjóðs er hann mun lægri. Eignir nema 3.245 ma.kr. og skuldir 3.134 ma.kr. Miklu munar um efnahag Landsbankans og Landsvirkjunar sem eru í C-hluta ríkissjóðs. Þegar C-hluti er meðtalinn bætast m.a. við innlán að fjárhæð 1.370 ma.kr. og 1.821 ma.kr. í útlán auk þess sem bæði varanlegir rekstrarfjármunir og markaðsverðbréf hækka um meira en 830 ma.kr.
Nú er í fyrsta sinn birt sjóðstreymi með samanburði við fyrra ár og með því er komið til móts við athugasemd fjárlaganefndar í nefndaráliti vegna reikningsins 2023. Sjóðstreymi sýnir að handbært fé frá rekstri nemur 150 ma.kr. Nettófjárfestingarhreyfingar eru hins vegar neikvæðar um 385 ma.kr. Fjármögnunarhreyfingar eru jákvæðar um 116 ma.kr. og handbært fé lækkar því um 119 ma.kr. á árinu.
Eins og sjá má í eftirfarandi töflu batnar afkoma milli ára. Rekstrarafkoma er neikvæð um 56 ma.kr. Tekjur án fjármagnstekna nema samtals 1.425 ma.kr. og gjöldin 1.428 ma.kr. Afkoma fyrir fjármagnsliði er því sem næst í jafnvægi, eða neikvæð um aðeins tæpa 4 ma.kr. í samanburði við 20 ma.kr. neikvæða stöðu árið áður.
| Í ma.kr. | 2024 | 2023 | Breyting |
| Tekjur | |||
| Skatttekjur | 1.100,2 | 1.051,7 | 48,5 |
| Sala á vörum og þjónustu | 263,0 | 245,5 | 17,5 |
| Aðrar tekjur | 61,4 | 71,4 | –10,0 |
| Tekjur án fjármagnstekna | 1.424,6 | 1.368,6 | 56,0 |
| Gjöld | |||
| Tilfærslur og styrkir | 600,4 | 525,7 | 74,7 |
| Laun og starfsmannakostnaður | 386,6 | 361,3 | 25,3 |
| Afskriftir og niðurfærslur | 66,4 | 62,9 | 3,5 |
| Breyting á lífeyrisskuldbindingum | 47,0 | 97,0 | – 50,0 |
| Annar rekstrarkostnaður | 327,8 | 341,2 | – 13,4 |
| Gjöld án fjármagnsgjalda | 1.428,2 | 1.388,1 | 40,1 |
| Mismunur | – 3,6 | – 19,5 | 15,9 |
| Fjármagnstekjur | 256,8 | 243,1 | 13,7 |
| Fjármagnsgjöld | 313,4 | – 315,0 | 628,4 |
| Vaxtajöfnuður | – 56,6 | – 71,9 | 15,3 |
| Hlutdeildaráhrif o.fl. | 4,3 | 10,0 | – 5,7 |
| Afkoma ársins | – 55,9 | – 81,4 | 25,5 |
Vaxtajöfnuður er nú neikvæður um 57 ma.kr. í samanburði við 72 ma.kr. árið 2023. Heildarafkoma er neikvæð um 56 ma.kr. og því er afkoma 26 ma.kr. betri en árið áður.
Samanburður við fjárlög.
Til þess að ríkisreikningur sé sambærilegur við 1. gr. fjárlaga verður framsetning að vera á svokölluðum GFS-hagskýrslustaðli. Fjárlögin taka einungis til A1-hluta ríkissjóðs en ekki til A-hluta í heild eða samstæðureiknings ríkissjóðs.
Eins og fram kemur í töflunni er afkoma A1-hluta neikvæð um 62 ma.kr. miðað við 20 ma.kr. árið áður. Hallinn árið 2023 var sá minnsti um árabil þar sem árin þar á undan einkenndust m.a. af áhrifum heimsfaraldurs kórónuveiru.
Frumjöfnuður er jákvæður um 31 ma.kr. miðað við 79 ma.kr. árið áður. Frumjöfnuður áranna þar á undan var ýmist í jafnvægi eða neikvæður.
| 2024 | 2023 | |||||
| Í m.kr. | Reikn. | Fjárlög | Frávik | Reikn. | Fjárlög | Mism. |
| Rekstrartekjur | 1.321.297 | 1.315.088 | 6.209 | 1.250.266 | 1.122.502 | 127.764 |
| Rekstrargjöld | 1.289.917 | 1.290.177 | 260 | 1.171.608 | 1.172.829 | 1.221 |
| Frumjöfnuður | 31.380 | 24.911 | 6.469 | 78.658 | –50.327 | 126.543 |
| Vaxtatekjur | 28.681 | 41.408 | –12.727 | 35.836 | 25.424 | 10.412 |
| Vaxtagjöld | 121.921 | 117.561 | –4.360 | 134.523 | 94.677 | –39.846 |
| Vaxtajöfnuður | –93.240 | –76.153 | –17.087 | –98.687 | –69.253 | –29.434 |
| Afkoma (GFS-staðall) | –61.860 | –51.242 | –10.618 | –20.029 | –119.580 | 97.109 |
Endurskoðun ríkisreiknings.
Nefndin hefur fjallað um endurskoðunarskýrslu Ríkisendurskoðunar samhliða afgreiðslu frumvarpsins. Í nokkur ár hefur Ríkisendurskoðun gert fjölmargar athugasemdir og komið fram með ábendingar vegna endurskoðunarinnar. Athugasemdir hafa aðallega beinst að Fjársýslu ríkisins, fjármála- og efnahagsráðuneyti og Vegagerðinni.
Á fundi nefndarinnar með Ríkisendurskoðun kom fram að töluvert hefur áunnist í þessum efnum á undanförnum árum. Sem dæmi um það fer endurskoðun nú í meira mæli fram samhliða vinnslu reikningsins. Endurskoðunarskýrsla liggur því fyrir stuttu eftir að ríkisreikningur er gefinn út. Áður var algengt að hún kæmi ekki út fyrr en mörgum mánuðum á eftir reikningnum.
Sérstakar athugasemdir eða ábendingar Ríkisendurskoðunar voru 22 talsins vegna reikningsins fyrir árið 2024. Það er fækkun frá því sem áður var. Þær voru 39 vegna ársins 2022 og 25 talsins vegna ársins 2023.
Einnig hefur tekist að ljúka gerð reikningsins fyrr en áður og uppfylla skilyrði laga um að ríkisreikningur liggi fyrir innan sex mánaða frá árslokum.
Eftir sem áður eru nokkur veigamikil verkefni þar sem verulega þarf að bæta verklag og vinnubrögð.
Ríkisendurskoðun bendir á að innleiðing alþjóðlegra reikningsskilastaðla (IPSAS) hefur dregist úr hömlu og ljóst að allir aðilar máls, Fjársýslan, fjármála- og efnahagsráðuneyti og Ríkisendurskoðun sjálf, vanmátu umfang verkefnisins. Stofnunin leggur til að leitað verði utanaðkomandi sérfræðiaðstoðar til að bæta fylgni við reikningsskilastaðla.
Að mati nefndarinnar snýr ein alvarlegasta ábendingin að eignamati varanlegra rekstrarfjármuna. Bent er á að ekki hefur tekist með fullnægjandi hætti að staðreyna að sundurliðun á bókfærðu virði vega og veghluta sé til staðar. Enn fremur er gerð athugasemd við forsendur við útreikning afskrifta sem eru ekki í tengslum við bókfært virði eigna í umsjón Vegagerðarinnar. Einnig er veigamikil athugasemd sem snýr að því hve hægt gengur að efla innri endurskoðun hjá ríkisstofnunum.
Niðurstaða meiri hluta.
Þrátt fyrir framangreindar athugasemdir er í heild um framför að ræða á milli ára og ljóst að hlutaðeigandi aðilar hafa unnið að því að leysa úr ágreiningsmálum sín á milli eins og fjárlaganefnd brýndi fyrir þeim í áliti sínu vegna ríkisreiknings 2023.
Nefndinni er kunnugt um að verið sé að bregðast sérstaklega við athugasemdum Ríkisendurskoðunar varðandi mat á bókfærðu virði vegakerfisins. Nefndin mun einnig fylgja eftir ýmsum öðrum ábendingum sem fram koma í endurskoðunarskýrslu.
Í ljósi þess að áritun ríkisendurskoðanda er án fyrirvara, en með ábendingu um að ekki sé búið að innleiða alla alþjóðlega reikningsskilastaðla, og í ljósi þess að áfram er unnið að úrlausn athugasemda í endurskoðunarskýrslu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.
Alþingi, 18. febrúar 2026.
| Sigurjón Þórðarson, form., frsm. |
Ingvar Þóroddsson. | Lilja Hrönn Önnudóttir Hrannarsdóttir. | |
| Stefán Þór Eysteinsson. | Valdimar Breiðfjörð Birgisson. | ||