Ferill 493. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 823 — 493. mál.
Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um Schengen-samstarfið.
Frá Snorra Mássyni.
1. Hver er afstaða ráðherra til þeirrar aðgerðar spænskra stjórnvalda að veita allt að 500.000 einstaklingum sem dvelja og starfa á Spáni án fullnægjandi heimildar tímabundið dvalar- og atvinnuleyfi að uppfylltum ákveðnum skilyrðum?
2. Telur ráðherra að aðgerðin geti haft áhrif á framkvæmd Schengen-samstarfsins, þar á meðal að því er varðar réttinn til frjálsrar farar og sameiginlega ábyrgð aðildarríkja? Ef svo er, hvernig?
3. Hyggst ráðherra beita sér fyrir því að íslensk stjórnvöld leiti formlegra skýringa á aðgerðinni, kynni afstöðu sína til hennar og beri fram athugasemdir um hana í alþjóðlegu samstarfi, t.d. í samráði við Schengen-ríki og eftir atvikum stofnanir Evrópusambandsins? Ef svo er, hvernig?
4. Hvernig telur ráðherra að nýtt samkomulag Evrópusambandsins við Indland, sem felur í sér aukið samstarf um réttinn til frjálsrar farar, menntun og tímabundið atvinnuleyfi á grundvelli tvíhliða samninga, muni reynast að því er snertir reglur Schengen-samstarfsins um réttinn til frjálsrar farar? Hvaða áhrif telur ráðherra að hið nýja samkomulag muni hafa á fólksflutninga til Íslands?
5. Telur ráðherra að íslensk stjórnvöld þurfi að beita sér gegn opnari innflytjendastefnu aðildarríkja Schengen-samstarfsins eða Evrópusambandsins í ljósi hagsmuna Íslendinga?
Munnlegt svar óskast.