Ferill 494. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 824  —  494. mál.




Fyrirspurn


til utanríkisráðherra um lokun sendiráðs Íslands í Moskvu.

Frá Ingibjörgu Davíðsdóttur.


     1.      Hvernig var staðið að lokun sendiráðs Íslands í Moskvu?
     2.      Hvaða greiningar lágu að baki ákvörðun um lokun sendiráðsins? Lá t.d. fyrir ráðlegging í þá veru að rétt væri að loka sendiráðinu?
     3.      Hvernig var ákvörðun um lokun sendiráðsins tekin að lokum, t.d. af ríkisstjórn?
     4.      Var haft samráð við önnur ríki um lokun sendiráðsins? Ef svo er, hvaða ríki?
     5.      Höfðu önnur ríki gefið í skyn að þau hygðust gera slíkt hið sama?
     6.      Hverjar eru ástæður þess að talið var rétt að loka sendiráði Íslands í Moskvu?
     7.      Er það rétt að ein af ástæðum lokunar sendiráðsins hafi verið öryggi starfsmanna eins og fram kom í fjölmiðlum nokkuð löngu eftir lokun? Ef svo er, var það í fyrsta sinn sem ástæða var til að hafa áhyggjur af öryggi eða aðbúnaði starfsmanna sendiráðsins?
     8.      Hvernig var eða er eignarhaldi háttað á embættisbústað sendiherra Íslands í Moskvu eða skrifstofu sendiráðsins? Voru það eignir íslenska ríkisins? Var það húsnæði tekið á leigu?
                  a.      Ef í eigu ríkisins, hver er staða þessara eigna nú?
                  b.      Ef leigt, var öllum leigusamningum sagt upp strax við lokun sendiráðsins?
                  c.      Ef nú er greidd leiga fyrir húsnæði í Moskvu, fyrir hvernig húsnæði og undir hvaða starfsemi?
     9.      Hefur íslenska ríkið einhver útgjöld af starfsemi í Moskvu nú?
     10.      Hvernig hefur samskiptum Íslands og Rússlands verið háttað í kjölfar lokunar sendiráðs Íslands?
     11.      Hvernig hefur staðarráðnu starfsfólki sem starfaði við sendiráðið reitt af í kjölfar lokunar sendiráðsins og starfsloka þeirra? Var sérstaklega hugað að velferð þessara einstaklinga? Hvernig?


Skriflegt svar óskast.