Ferill 352. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Prentað upp.

Þingskjal 831  —  352. mál.
Leiðrétt tafla.




Svar


menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra við fyrirspurn frá Karli Gauta Hjaltasyni um fjármuni til loftslagsmála.


     1.      Hversu miklu fé hefur verið varið árlega til loftslagsmála á vegum ráðuneytisins á árunum 2017 til og með nóvember 2025, sundurliðað eftir ráðuneyti og stofnunum?
     2.      Til hvaða verkefna hafa þessir fjármunir runnið á umræddu tímabili? Þess er óskað að verkefnum verði skipt niður eftir:
                  a.      skattstyrkjum,
                  b.      aðgerðum í samgöngum,
                  c.      aðgerðum í landbúnaði,
                  d.      öðrum beinum aðgerðum, svo sem styrkveitingum og kaupum á þjónustu einkaaðila, svo sem fyrirtækja, einstaklinga og félagasamtaka.

    Meðfylgjandi svar miðast við árin 2022–2025, en árið 2022 tóku háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti annars vegar og menningar- og viðskiptaráðuneyti hins vegar, forverar menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytis, til starfa.

Línumerki
2022 2023 2024 2025 Heildarsumma
Faggildingarsvið Hugverkastofu 40.000     231.000 330.000 601.000
Samgöngustyrkir      40.000     231.000 330.000 601.000
Fjölmiðlanefnd     
0     0 0     0 0
Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti , aðalskrifstofa     865.730     1.489.500          1.650.125     1.667.105 5.672.460
Samgöngustyrkir 865.730 1.489.500      1.650.125 1.667.105 5.672.460
Háskóli Íslands      420.692 647.608 644.700 8.380.794      10.093.794
Samgöngustyrkir 420.692 647.608      644.700 303.594      2.016.594
Samningur við Strætó 8.077.200 8.077.200
Háskólinn á Akureyri (HA) 6.757.383      6.857.921 8.474.708 8.594.191      30.684.203
Samgöngustyrkir 6.757.383 6.246.149          7.597.536 7.956.920 28.557.988
Kolefnisjöfnun           348.536      852.172      622.270     

1.822.978

Ýmis kostnaður vegna umhverfismála vegna verkefna umhverfisráðs HA 263.236 25.000 15.001     303.237
Hljóðbókasafn Íslands 644.000 639.000 751.500      699.940 2.734.440
Samgöngustyrkir 644.000 639.000      751.500      699.940      2.734.440
Hugverkastofan 578.736 513.230      787.500 913.000     2.792.466
Samgöngustyrkir 570.000 513.230      787.500      913.000          2.783.730
Kolefnisjöfnun 8.736      8.736
Íslenski dansflokkurinn 0      0      0 0 0
Kvikmyndamiðstöð Íslands 330.000      3.903.000           6.961.289 4.816.270      16.010.559
Samgöngustyrkir 330.000 303.000      517.844      451.500      1.602.344
Ýmis verkefni sem saman hafa lagt grunn að þróun NES (Nordic Ecological Standard ) sem er samnorrænn sjálfbærnistaðall í kvikmyndaframleiðslu og samstarfsverkefni kvikmyndastofnana allra Norðurlandanna undir merkjum The Five Nordics. Markmið NES er að koma á sameiginlegum, sjálfbærum staðli fyrir kvikmynda- og sjónvarpsframleiðslu á Íslandi, í Noregi, Danmörku, Svíþjóð og Finnlandi, með innleiðingu sem hefst árið 2026 til að minnka kolefnisfótspor og stuðla að aukinni sjálfbærni í kvikmyndaframleiðslu. Verkefnið er brautryðjandi og á þróunarstigi og því liggja ekki fyrir mælingar á áhrifum þess að svo stöddu. 3.600.000 6.443.445 4.364.770 14.408.215
Kvikmyndasafn Íslands 90.000 60.000 0     150.000
Samgöngustyrkir 90.000 60.000 0          150.000
Landbúnaðarháskóli Íslands 0 0      0 0 0
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn 2.397.046      2.495.428 2.239.105 3.345.037     10.476.616
Samgöngustyrkir 2.397.046          2.490.616 2.239.105 3.345.037     10.471.804
Kolefnisjöfnun 4.812          4.812
Listasafn Íslands

372.614 1.072.153 2.006.722 1.732.984 5.184.473
Samgöngustyrkir 372.614 1.072.153 2.006.722 1.732.984 5.184.473
Menningar- og viðskiptaráðuneyti, aðalskrifstofa               403.401                760.000 1.138.895 264.169

    2.566.465

Samgöngustyrkir      403.401      760.000 1.138.895 264.169 2.566.465
Menntasjóður námsmanna 0 0 0      0      0
Náttúruminjasafn Íslands 0 238.500 333.000 124.000     695.500
Samgöngustyrkir      0 238.500 333.000 124.000 695.500
Neytendastofa           0 120.000 120.000 171.107 411.107
Samgöngustyrkir 0 120.000 120.000 171.107 411.107
Rannsóknamiðstöð Íslands     324.000 1.680.000 1.938.000 2.506.731          6.448.731
Samgöngustyrkir      324.000      1.680.000      1.938.000      2.506.731      6.448.731
Raunvísindastofnun Háskólans 180.900 180.900
Samgöngustyrkir 180.900          180.900
Safnasjóður           126.000 132.000     258.000
Samgöngustyrkir      126.000      132.000 258.000
Miðstöð íslenskra bókmennta 216.000 170.000 210.000 66.000 662.000
Samgöngustyrkir      216.000 170.000      210.000 66.000 662.000
Sam skiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra      570.914           190.000          135.000 216.653 1.112.567
Samgöngustyrkir      215.000           190.000 135.000 185.000 725.000
Reiðhjól                     215.919
Hlaupahjól      139.995
Kolefnisjöfnun      31.653     31.653
Sinfóníuhljómsveit Íslands 1.037.800      1.398.500 1.570.850 2.210.700      6.217.850
Samgöngustyrkir      978.000 1.236.500 1.285.250      1.951.100     5.450.850
Kolefnisjöfnun      59.800      162.000      285.600 259.600 767.000
Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum      34.400 0 643.320          677.720
Samgöngustyrkir 24.000 0 643.320 667.320
Kolefnisjöfnun 10.400      10.400
Tilraunastöð Háskólans að Keldum 0 322.733 312.710 283.973     919.416
Samgöngustyrkir 0 322.733 312.710 283.973     919.416
Þjóðleikhúsið 19.031.246      18.236.760 18.155.001      3.386.608 58.809.615
Samgöngustyrkir      3.306.246      2.511.760 2.430.001 2.761.608 11.009.615
Hleðslustöðvar fyrir starfsfólk 225.000 225.000 225.000 625.000 1.300.000
Endurnýjun á ljósakerfi sem hefur jafnframt í för með sér umhverfisvænni áhrif með nýjum tegundum LED-ljósapera 15.500.000      15.500.000 15.500.000 46.500.000
Þjóðminjasafn Íslands 147.117 499.248 756.646 502.707 1.905.718
Samgöngustyrkir 147.117      499.248      756.646 502.707 1.905.718
Þjóðskjalasafn Íslands 1.049.830 1.549.154 2.399.000 2.637.000 7.634.984
Samgöngustyrkir 1.014.922 1.549.154 2.399.000           2.637.000     7.600.076
Kolefnisjöfnun 34.908 34.908
Heildarsumma 35.451.809 42.882.735 50.941.751 43.624.289 172.900.584


     3.      Hvaða mælingar liggja fyrir um árangur af framangreindri ráðstöfun opinbers fjár?
    Mælingar á árangri af ráðstöfun opinbers fjár til loftslagsmála á verkefnasviði menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytis byggjast almennt á þeim upplýsingum og mælikvörðum sem stofnanir safna í tengslum við innleiðingu umhverfis- og loftslagsaðgerða í rekstri. Þar er einkum horft til rekstrartengdra mælikvarða, svo sem:
                  a.      Græns bókhalds og losunartalna, þar sem meðal annars er haldið utan um kolefnisspor vegna ferða og samgangna á vegum starfseminnar og eftir atvikum aðra rekstrarþætti sem tengjast loftslagsáhrifum, t.d. orku- og auðlindanotkun.
                  b.      Eftirfylgni með innleiðingu aðgerða í ramma Grænna skrefa í ríkisrekstri, þar sem árangur er metinn með stöðumatsskrefum/úttektum og skráningu á framkvæmd aðgerða.
                  c.      Mælinga og talninga sem tengjast ferðavenjum og samgöngum, svo sem, eftir því sem við á, fjölda samgöngusamninga, niðurstöðum ferðavenjukannana starfsmanna og samantektum um ferðakostnað/akstursgreiðslur.
                  d.      Eftir atvikum sjálfbærniskýrslur og aðrar skráningar og samantektir um umhverfis- og loftslagsáhrif, þar sem gerð er grein fyrir markmiðum, aðgerðum og framvindu í loftslags- og sjálfbærnimálum, t.d. í tengslum við rekstur, ferðir og samgöngur, innkaup, úrgang, fræðslu/innleiðingu og sjálfbærni í víðum skilningi.

     4.      Hverjir eru helstu viðtakendur umræddra fjármuna á verkefnasviði ráðuneytisins? Óskað er eftir upplýsingum um greiðslur yfir 500 þús. kr. og fyrir hvað var greitt.
    

Viðtakendur

Skýring

Atendi ehf.
Endurnýjun ljósakerfis
Exton ehf. Endurnýjun ljósakerfis
Glassriver ehf. Greiðsla til kvikmyndaframleiðanda vegna samstarfssamnings um prufukeyrslu NES
Green Producers Club Aðgangur að kolefnisreiknivél Green Producers Club fyrir kvikmyndagerð
Ísorka ehf. Rafhleðslustöðvar
Kolviður, sjóður Kolefnisjöfnun
Sagafilm ehf. Greiðsla til kvikmyndaframleiðanda vegna samstarfssamnings um prufukeyrslu NES
Strætó bs. Samningur vegna niðurgreiðslu fyrir starfsmenn
The Five Nordics Þróun NES og aðildargjald 2025
Einstaklingur Sérfræðiþjónusta vegna kvikmyndatengdra loftlagsmála