Ferill 502. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 844  —  502. mál.




Fyrirspurn


til forsætisráðherra um kostnað o.fl. vegna krafna um eignarhald á landsvæðum utan strandlengju meginlandsins.

Frá Karli Gauta Hjaltasyni.


     1.      Hver er heildarkostnaður ríkisins og óbyggðanefndar við landsvæði utan strandlengju meginlandsins (eyjar, hólmar, sker og drangar), sbr. 10. gr. a laga um þjóðlendur, nr. 58/1998? Óskað er eftir sundurliðuðum kostnaði við störf nefndarinnar, undirbúning, kröfugerð, lýsingu, auglýsingar, greinargerðir, málarekstur, úrskurðarvinnu og aðkeypta ráðgjöf og kostnaði annarra en ríkisins vegna hagsmunagæslu fyrir nefndinni.
     2.      Hver er sundurliðaður heildarkostnaður, sbr. 1. tölul., við málarekstur ríkisins við kröfulýsingar vegna hluta Heimaeyjar og úteyja og skerja við Vestmannaeyjar um að þær yrðu þjóðlendur?
     3.      Hversu langan tíma vann nefndin að málinu tengdu Vestmannaeyjum, hvenær hófst vinnan og hvenær lauk henni?
     4.      Var í framangreindum málum um einhvern kostnað að ræða sem úrskurðaður var skv. 3. mgr. 17. gr. laganna eins og hún var fyrir brottfall hennar?


Skriflegt svar óskast.