Ferill 503. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 845 — 503. mál.
Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um afturköllun alþjóðlegrar verndar og umsóknir um alþjóðlega vernd sem hafa verið dregnar til baka.
Frá Karli Gauta Hjaltasyni.
1. Hversu oft hefur alþjóðleg vernd, sem veitt hefur verið af íslenskum stjórnvöldum, verið afturkölluð frá gildistöku laga nr. 80/2016, um útlendinga? Svar óskast sundurliðað eftir árum og eftir því hvort ákvörðunin hafi verið endanleg á stjórnsýslustigi af hálfu Útlendingastofnunar eða með úrskurði kærunefndar útlendingamála. Svarið óskast jafnframt sundurliðað eftir ríkisfangi og því hvort talið er að aðili/aðilar málsins hafi snúið aftur til heimaríkis eftir afturköllunina.
2. Finnast dæmi þess eftir gildistöku laga nr. 80/2016 að alþjóðleg vernd hafi verið afturkölluð í kjölfar þess að handhafar verndarinnar hafi verið sakfelldir fyrir brot gegn XXII. kafla almennra hegningarlaga, nr. 19/1940? Ef svo er, er óskað eftir því að fjöldi þeirra sé tilgreindur eftir árum og ríkisfangi.
3. Hversu margir hafa dregið umsókn sína um alþjóðlega vernd til baka á árunum 2017– 2025, að báðum árum meðtöldum? Svar óskast sundurliðað eftir árum og ríkisfangi.
Skriflegt svar óskast.