Ferill 504. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 846 — 504. mál.
Fyrirspurn
til atvinnuvegaráðherra um erfðabreytileika laxa.
Frá Sigurjóni Þórðarsyni.
1. Telur ráðherra að niðurstöður skýrslu Matís frá mars 2024, „Erfðabreytileiki laxa í Laxá í Aðaldal“, sem benda til verulegra breytinga á erfðasamsetningu laxastofnsins, gefi tilefni til að ráðast í sambærilegar rannsóknir í öðrum laxveiðiám landsins?
2. Telur ráðherra að niðurstöðurnar gefi tilefni til að endurskoða regluverk og eftirlit með fiskirækt, þar á meðal seiðasleppingum, og hvort þörf sé á auknu aðhaldi í þeim efnum?
Skriflegt svar óskast.