Ferill 508. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 852  —  508. mál.




Fyrirspurn


til heilbrigðisráðherra um synjanir geðheilsuteyma Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.

Frá Rósu Guðbjartsdóttur.


     1.      Hversu margir þeirra 1.997 einstaklinga er var synjað um þjónustu hjá geðheilsuteymum heilsugæslunnar frá því að þau tóku til starfa, sbr. svar ráðherra á þskj. 743 á yfirstandandi þingi, voru með tilvísun frá lækni fyrir þjónustu? Ef tilvísun stafaði ekki frá lækni, hvaðan kom hún þá?
     2.      Er stuðst við eftirfarandi flokkun þegar skjólstæðingum er synjað um þjónustu hjá geðheilsuteymum Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins?:
                  a.      Skammtímaendurhæfing ekki raunhæf.
                  b.      Vísað í 1. stigs þjónustu.
                  c.      Ófullnægjandi tilvísun.
                  d.      VIRK.
                  e.      Nú þegar í viðeigandi úrræði.
                  f.      Geðheilsuteymi taugaþroskaraskana.
                  g.      Vísað til 3. stigs þjónustu.
                  h.      ADHD-teymi.
                  i.      ADHD-greiningu eða lyfjameðferð vegna ADHD.
                  j.      DAM-teymi.
                  k.      Vísað til félagsþjónustu.
                  l.      Afþakkar þjónustu í matsviðtali.
                  m.      Vísað til geðlæknis á stofu.
                  n.      Náðist ekki í skjólstæðing til að boða í viðtal.
     3.      Með hvaða hætti hyggst ráðherra bregðast við þeim mikla fjölda sem er vísað frá þjónustu?
     4.      Er einhver eftirfylgni af hálfu ráðuneytisins með þeim einstaklingum sem vísað er frá þjónustu geðheilsuteyma heilsugæslunnar?


Skriflegt svar óskast.