Ferill 509. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 853 — 509. mál.
Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um fjölda gæsluvarðhalds- og afplánunarfanga.
Frá Karli Gauta Hjaltasyni.
1. Hver var heildarfjöldi gæsluvarðhaldsfanga á árunum 2019–2025, sundurliðað eftir upprunalandi og kyni? Einnig er óskað eftir meðallengd gæsluvarðhalds í dögum yfir sama tímabil, sundurliðað eftir upprunalandi og kyni.
2. Hver var heildarfjöldi afplánunarfanga á árunum 2019–2025, sundurliðað eftir upprunalandi, kyni og tegund afplánunarúrræðis? Einnig er óskað eftir meðallengd afplánunar í mánuðum yfir sama tímabil, sundurliðað eftir upprunalandi og kyni.
3. Hver var árlegur fjöldi einstaklinga sem afplánuðu íslenska fangelsisdóma erlendis á árunum 2019–2025, sundurliðað eftir upprunalandi og kyni?
4. Hver var árlegur fjöldi einstaklinga á biðlista eftir afplánun árin 2019–2025, sundurliðað eftir upprunalandi og kyni?
5. Hver var árlegur fjöldi einstaklinga sem fallið höfðu af biðlista eftir afplánun vegna fyrningar fangelsisdóms á árunum 2019–2025, sundurliðað eftir upprunalandi og kyni?
Skriflegt svar óskast.