Ferill 231. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 857 — 231. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á ýmsum lögum vegna stafrænnar og rafrænnar málsmeðferðar hjá sýslumönnum og dómstólum.
(Eftir 2. umræðu, 3. mars.)
I. KAFLI
Breyting á erfðalögum, nr. 8/1962.
1. gr.
Beiðni um leyfi til setu í óskiptu búi eða öðru gagni sem tengist beiðninni og er afhent eða sent á milli þeirra sem aðkomu eiga að máli er heimilt að miðla á rafrænu eða stafrænu formi, enda leiki ekki vafi á uppruna þess eða frá hverjum það stafar. Sýslumaður getur ákveðið að frumrit gagns verði lagt fram við meðferð máls telji hann það nauðsynlegt, svo sem vegna sönnunar á þeim réttindum sem eiga í hlut.
Þegar ákvæði þessa kafla eða venja áskilja áritun, undirritun, staðfestingu eða vottun telst slíkum áskilnaði fullnægt með rafrænni staðfestingu.
Gagn sem miðlað er á stafrænu eða rafrænu formi telst komið til viðtakanda þegar það er aðgengilegt þannig að unnt sé að kynna sér efni þess. Beiðni eða annað gagn þarf ekki jafnframt að afhenda á pappírsformi.
Ráðherra skal með reglugerð kveða nánar á um framkvæmd þessa ákvæðis um meðferð mála hjá sýslumanni, þar á meðal um rafræna staðfestingu, afhendingarmáta og form og frágang gagna.
2. gr.
II. KAFLI
Breyting á lögum um aðför, nr. 90/1989.
3. gr.
Aðfararbeiðni, tilkynningu eða öðru gagni sem á grundvelli laga þessara er afhent eða sent á milli þeirra sem aðkomu eiga að máli er heimilt að miðla á rafrænu eða stafrænu formi, enda leiki ekki vafi á uppruna þess eða frá hverjum það stafar. Sýslumaður getur ákveðið að frumrit gagna verði lögð fram við meðferð máls telji hann það nauðsynlegt, svo sem vegna sönnunar á þeim réttindum sem málsaðili telur sig eiga.
Þegar lög þessi eða venja áskilja áritun, undirritun, staðfestingu eða vottun telst slíkum áskilnaði fullnægt með rafrænni staðfestingu.
Aðfararbeiðni, tilkynning eða annað gagn sem miðlað er á stafrænu eða rafrænu formi telst komið til viðtakanda þegar það er aðgengilegt þannig að unnt sé að kynna sér efni þess. Gagn eða tilkynningu þarf ekki jafnframt að afhenda á pappírsformi.
Gögn og tilkynningar sem birt eru eftir fyrirmælum 7., 21. og 80. gr. skulu, þrátt fyrir 3. mgr., birt á því formi og á þann hátt sem þar er lýst.
Ráðherra skal með reglugerð kveða nánar á um framkvæmd þessa ákvæðis um meðferð mála hjá sýslumanni, þar á meðal um rafræna staðfestingu, afhendingarmáta og form og frágang gagna.
4. gr.
5. gr.
6. gr.
a. Á eftir orðunum „skal aðfararbeiðni“ í 1. málsl. kemur: ásamt fylgigögnum.
b. 2. málsl. fellur brott.
7. gr.
8. gr.
9. gr.
a. Í stað orðsins „símskeyti“ í 21. gr. laganna kemur: í stafrænu pósthólfi í miðlægri þjónustugátt stjórnvalda.
b. Tveir nýir málsliðir bætast við, svohljóðandi: Tilkynning telst réttilega birt í stafrænu pósthólfi í miðlægri þjónustugátt stjórnvalda þegar gerðarþoli hefur staðfest móttöku hennar. Um birtingu í stafrænu pósthólfi fer að öðru leyti eftir lögum um stafrænt pósthólf í miðlægri þjónustugátt stjórnvalda.
10. gr.
Sýslumaður getur heimilað málsaðila að mæta við aðför sem fram fer á starfsstofu sýslumanns samkvæmt lögum þessum um fjarfundarbúnað, með hljóði og mynd ef þess er kostur, enda geti allir sem viðstaddir eru fylgst með því sem fram fer.
Ráðherra skal setja reglugerð sem kveður nánar á um heimild til að mæta hjá sýslumanni við aðför um fjarfundarbúnað.
11. gr.
12. gr.
13. gr.
14. gr.
a. Í stað orðanna „með símskeyti“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: í stafrænu pósthólfi í miðlægri þjónustugátt stjórnvalda, eða með.
b. Við 2. mgr. bætast tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Tilkynning skv. 1. mgr. telst réttilega birt í stafrænu pósthólfi í miðlægri þjónustugátt stjórnvalda þegar gerðarþoli hefur staðfest móttöku hennar. Um birtingu í stafrænu pósthólfi fer að öðru leyti eftir lögum um stafrænt pósthólf í miðlægri þjónustugátt stjórnvalda.
15. gr.
16. gr.
17. gr.
III. KAFLI
Breyting á lögum um skipti á dánarbúum o.fl., nr. 20/1991.
18. gr.
Tilkynningu eða öðru gagni sem á grundvelli laga þessara er afhent eða sent á milli þeirra sem aðkomu eiga að máli er heimilt að miðla á rafrænu eða stafrænu formi, enda leiki ekki vafi á uppruna þess eða frá hverjum það stafar. Sýslumaður getur ákveðið að frumrit gagns verði lagt fram við meðferð máls telji hann það nauðsynlegt, svo sem vegna sönnunar á eignum þess látna eða erfðaréttindum eftir hann eða réttindum sem aðrir telja sig eiga.
Þegar lög þessi eða venja áskilja áritun, undirritun, staðfestingu eða vottun telst slíkum áskilnaði fullnægt með rafrænni staðfestingu.
Tilkynning eða gagn sem miðlað er á stafrænu eða rafrænu formi telst komið til viðtakanda þegar það er aðgengilegt þannig að unnt sé að kynna sér efni þess. Gagn eða tilkynningu þarf ekki jafnframt að afhenda á pappírsformi.
Gögn og tilkynningar sem birt eru skv. 43. og 128. gr. skulu, þrátt fyrir ákvæði 3. mgr., birt á því formi og á þann hátt sem þar er lýst.
Ráðherra skal með reglugerð kveða nánar á um framkvæmd þessa ákvæðis um meðferð mála hjá sýslumanni, þar á meðal um rafræna staðfestingu, afhendingarmáta og form og frágang gagna.
19. gr.
Heimilt er sýslumanni eða umboðsmanni hans að gefa vottorð um móttöku andlátstilkynningar en veita tilkynnanda skamman frest til að gefa upplýsingar um þau atriði sem getið er í 1. mgr. með skriflegri tilkynningu eða með því að mæta á ný eða senda annan í sinn stað á fund sýslumanns.
20. gr.
a. 1. málsl. 2. mgr. orðast svo: Skylt er tilkynnanda andláts eða öðrum, sem sýslumaður telur eftir því sem fram er komið að geti veitt frekari upplýsingar um eignir þess látna eða erfðaréttindi eftir hann, að veita þær upplýsingar sem honum er kostur með tilkynningu eða með því að verða við kvaðningu um að koma á fund sýslumanns.
b. Við bætast tvær nýjar málsgreinar, svohljóðandi:
Sýslumaður getur heimilað hlutaðeigandi að mæta á fund skv. 2. mgr. um fjarfundarbúnað, með hljóði og mynd ef þess er kostur.
Ráðherra skal með reglugerð kveða nánar á um heimild til að mæta á fund hjá sýslumanni um fjarfundarbúnað.
21. gr.
22. gr.
23. gr.
a. Í stað orðanna „eftirrit úr dánarskrá og gerðabók“ í 1. málsl. 2. mgr. 42. gr. laganna kemur: eintök dánarskrár og gerðabókar.
b. Í stað orðsins „samrit“ í 3. mgr. kemur: eintak.
24. gr.
a. Í stað orðsins „símskeyti“ í 2. málsl. 1. mgr. kemur: stafrænu pósthólfi í miðlægri þjónustugátt stjórnvalda.
b. Við 2. mgr. bætast tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Tilkynning skv. 1. mgr. telst réttilega birt í stafrænu pósthólfi í miðlægri þjónustugátt stjórnvalda þegar viðtakandi hefur staðfest móttöku hennar. Um birtingu í stafrænu pósthólfi fer að öðru leyti eftir lögum um stafrænt pósthólf í miðlægri þjónustugátt stjórnvalda.
25. gr.
Skiptastjóri getur heimilað málsaðila að mæta á skiptafund samkvæmt lögum þessum um fjarfundarbúnað, með hljóði og mynd ef þess er kostur, enda geti allir sem viðstaddir eru fylgst með því sem fram fer.
Um notkun fjarfundarbúnaðar fer að öðru leyti eftir reglum dómstólasýslunnar um fjarþinghöld dómstóla, eftir því sem við getur átt.
26. gr.
27. gr.
28. gr.
29. gr.
30. gr.
IV. KAFLI
Breyting á lögum um gjaldþrotaskipti o.fl., nr. 21/1991.
31. gr.
32. gr.
Um rafræna staðfestingu og afhendingarmáta, form og frágang gagna vegna meðferðar mála fyrir dómi samkvæmt lögum þessum fer að öðru leyti eftir því sem mælt er fyrir um í lögum um meðferð einkamála og reglum settum með stoð í þeim.
33. gr.
Heimilt er að miðla á rafrænu eða stafrænu formi beiðni um heimild til greiðslustöðvunar eða til að leita nauðasamnings og kröfu um gjaldþrotaskipti, tilkynningu eða öðru gagni, sem á grundvelli laga þessara er afhent eða sent á milli þeirra sem aðkomu eiga að máli, enda leiki ekki vafi á uppruna þess eða frá hverjum það stafar.
Þegar lög þessi eða venja áskilja áritun, undirritun, staðfestingu eða vottun telst slíkum áskilnaði fullnægt með rafrænni staðfestingu.
Beiðni um heimild til greiðslustöðvunar eða til að leita nauðasamnings, krafa um gjaldþrotaskipti, tilkynning eða annað gagn sem miðlað er á stafrænu eða rafrænu formi telst komið til viðtakanda þegar það er aðgengilegt þannig að unnt sé að kynna sér efni þess. Beiðni, kröfu, tilkynningu eða annað gagn þarf ekki jafnframt að afhenda á pappírsformi.
Gögn og tilkynningar sem birt eru skv. 69. og 175. gr. skulu, þrátt fyrir ákvæði 3. mgr., birt á því formi og á þann hátt sem þar er lýst.
34. gr.
35. gr.
36. gr.
a. Á eftir orðunum „Krafa um gjaldþrotaskipti“ í 1. málsl. kemur: ásamt fylgigögnum.
b. 2. málsl. fellur brott.
37. gr.
a. Í stað orðsins „samrit“ í 2. málsl. 1. mgr. kemur: eintak.
b. Við 2. mgr. bætast tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Þó er heimilt að birta tilkynningu skv. 1. mgr. í stafrænu pósthólfi í miðlægri þjónustugátt stjórnvalda og telst hún þá réttilega birt þegar gerðarþoli hefur staðfest móttöku hennar. Um birtingu í stafrænu pósthólfi fer að öðru leyti eftir lögum um stafrænt pósthólf í miðlægri þjónustugátt stjórnvalda.
38. gr.
Skiptastjóri getur heimilað að mætt sé á skiptafund samkvæmt lögum þessum um fjarfundarbúnað, með hljóði og mynd ef þess er kostur, enda geti allir sem viðstaddir eru fylgst með því sem fram fer.
Um notkun fjarfundarbúnaðar fer að öðru leyti eftir reglum dómstólasýslunnar um fjarþinghöld dómstóla, eftir því sem við getur átt.
39. gr.
40. gr.
41. gr.
42. gr.
43. gr.
44. gr.
V. KAFLI
Breyting á lögum um nauðungarsölu, nr. 90/1991.
45. gr.
Heimilt er að miðla á rafrænu eða stafrænu formi beiðni um nauðungarsölu, tilkynningu eða öðru gagni, sem á grundvelli laga þessara er afhent eða sent á milli þeirra sem aðkomu eiga að máli, enda leiki ekki vafi á uppruna þess eða frá hverjum það stafar. Sýslumaður getur ákveðið að frumrit gagns verði lagt fram við meðferð máls hjá sýslumanni telji hann það nauðsynlegt, svo sem vegna sönnunar á þeim réttindum sem málsaðili telur sig eiga.
Þegar lög þessi eða venja áskilja áritun, undirritun, staðfestingu eða vottun telst slíkum áskilnaði fullnægt með rafrænni staðfestingu.
Beiðni um nauðungarsölu, tilkynning eða annað gagn sem miðlað er á stafrænu eða rafrænu formi telst komið til viðtakanda þegar það er aðgengilegt þannig að unnt sé að kynna sér efni þess. Gagn eða tilkynningu þarf ekki jafnframt að afhenda á pappírsformi.
Þrátt fyrir 3. mgr. skulu tilkynningar og gögn sem birt eru eftir fyrirmælum 9., 16. og 82. gr. birt á því formi og á þann hátt sem þar er lýst.
Ráðherra skal með reglugerð kveða nánar á um framkvæmd þessa ákvæðis um meðferð mála hjá sýslumanni, þar á meðal um rafræna staðfestingu, afhendingarmáta og form og frágang gagna.
46. gr.
47. gr.
a. Í stað orðsins „myndrit“ í 2. málsl. 3. mgr. kemur: annað eintak.
b. 1. málsl. 5. mgr. orðast svo: Ef beiðni er lögð fram á pappírsformi skulu jafnmörg eintök hennar fylgja og nemur fjölda gerðarþola.
48. gr.
a. Í stað orðanna „afrit hennar“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: eintak hennar í stafrænt pósthólf í miðlægri þjónustugátt stjórnvalda.
b. Á eftir 1. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
Tilkynning skv. 1. mgr. telst réttilega birt í stafrænu pósthólfi í miðlægri þjónustugátt stjórnvalda þegar gerðarþoli hefur staðfest móttöku. Um birtingu í stafrænu pósthólfi fer að öðru leyti eftir lögum um stafrænt pósthólf í miðlægri þjónustugátt stjórnvalda.
c. Í stað orðsins „afrit“ í 3. mgr. kemur: eintak.
49. gr.
a. Í stað tilvísunarinnar „2. mgr.“ kemur: 3. mgr.
b. Í stað orðanna „afrit“ og „afritið“ kemur: eintak; og: eintakið.
50. gr.
Sýslumaður getur heimilað málsaðila skv. 1. og 2. tölul. 2. gr. að mæta við fyrirtöku beiðni um nauðungarsölu skv. IV. kafla um fjarfundarbúnað, með hljóði og mynd ef þess er kostur, enda geti allir sem viðstaddir eru fylgst með því sem fram fer. Telst það fullnægjandi mæting af hálfu málsaðila.
Ráðherra skal með reglugerð kveða nánar á um heimild til að mæta hjá sýslumanni um fjarfundarbúnað.
51. gr.
52. gr.
53. gr.
54. gr.
55. gr.
56. gr.
57. gr.
Sýslumaður getur heimilað hlutaðeigandi að mæta til fyrirtöku skv. 2. mgr. um fjarfundarbúnað, með hljóði og mynd ef þess er kostur, enda geti allir sem viðstaddir eru fylgst með því sem fram fer. Ráðherra skal með reglugerð kveða nánar á um heimild til að mæta hjá sýslumanni um fjarfundarbúnað.
58. gr.
Sýslumaður getur heimilað hlutaðeigandi að mæta til fundar skv. 1. mgr. um fjarfundarbúnað, með hljóði og mynd ef þess er kostur, enda geti allir sem viðstaddir eru fylgst með því sem fram fer. Ráðherra skal með reglugerð kveða nánar á um heimild til að mæta hjá sýslumanni um fjarfundarbúnað.
59. gr.
60. gr.
61. gr.
62. gr.
a. Í stað orðanna „eftirrit gagna sem hafa verið lögð fram við nauðungarsöluna og endurrit úr gerðabók“ í 1. málsl. 2. mgr. kemur: eintök gagna sem hafa verið lögð fram við nauðungarsöluna og gerðabókar.
b. Í stað orðsins „afrit“ í 1. málsl. 3. mgr. kemur: eintak.
63. gr.
a. Við 1. málsl. bætist: eða í stafrænu pósthólfi í miðlægri þjónustugátt stjórnvalda.
b. Við bætast tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Birting í stafrænu pósthólfi í miðlægri þjónustugátt stjórnvalda telst réttilega hafa farið fram þegar málsaðilar hafa staðfest móttöku boðunar. Um birtingu í stafrænu pósthólfi fer að öðru leyti eftir lögum um stafrænt pósthólf í miðlægri þjónustugátt stjórnvalda.
64. gr.