Ferill 275. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 863  —  275. mál.




Viðbótarsvar


atvinnuvegaráðherra við fyrirspurn frá Karli Gauta Hjaltasyni um kostnað við starfslokasamninga.


    Í janúar sl. lagði ráðherra fram svar við fyrirspurn Karls Gauta Hjaltasonar um kostnað við starfslokasamninga, sbr. þingskjal 650 – 275. mál. Eins og þar kom fram reyndist ekki unnt að afla upplýsinga í tæka tíð um starfslokasamninga frá fyrri hluta þess tímabils sem fyrirspurnin lýtur að, þ.e. fram til 2022 þegar atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti var skipt upp og heiti þess breytt í matvælaráðuneyti. Með breytingunum voru stjórnarmálefni sem áður heyrðu undir ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra færð frá ráðuneytinu til annarra ráðuneyta ásamt þeim starfsmönnum sem unnið höfðu að málaflokkunum. Þá voru viðeigandi gögn í málaskrá ráðuneytisins flutt til viðtökuráðuneyta. Með nýjum forsetaúrskurðum í desember 2024 og mars 2025 voru aftur gerðar breytingar á skipan ráðuneyta og tók ráðuneytið þá við nýjum málefnum, þ.m.t. hluta þeirra málefna sem áður heyrðu undir ráðuneytið fyrir breytingarnar 2022. Vegna flutnings málefna og starfsmanna milli ráðuneyta á undanförnum árum tók lengri tíma en ella að finna upplýsingar um einstök starfsmannamál fyrri ára. Þessar upplýsingar liggja nú fyrir og er svarið því lagt fram á ný með uppfærðum svörum.

     1.      Hversu margir starfslokasamningar hafa verið gerðir innan ráðuneytisins annars vegar og hjá undirstofnunum þess hins vegar árlega frá árinu 2018?
    Starfslokasamningar sem taldir eru fram í töflunni að aftan eru samningar sem gerðir hafa verið frá árinu 2018 og fela í sér réttindi umfram það sem kveðið er á um í lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996.
    Fyrirspurnin var send á eftirfarandi stofnanir sem heyra undir atvinnuvegaráðuneytið: Ferðamálastofu, Fiskistofu, Hafrannsóknastofnun, Matvælastofnun, Neytendastofu, Samkeppniseftirlitið og Verðlagsstofu skiptaverðs. Vakin er athygli á því að taflan hefur verið leiðrétt frá fyrra svari þar sem tilgreindir voru þrír starfslokasamningar hjá Ferðamálastofu en einungis er um að ræða einn.
    Fjöldi starfslokasamninga sem hafa verið gerðir á umbeðnu tímabili hjá ráðuneytinu og undirstofnunum eru 15 en nánari sundurliðun eftir stofnunum og árum kemur fram í töflu hér að aftan:

Ráðuneyti/stofnun 2018 2019 2020 2021 2022 2023 2024 2025 Samtals
Ráðuneyti 1 1
Ferðamálastofa 1 1
Fiskistofa 1 1 1 3
Hafrannsóknastofnun 1 4 5
Matvælastofnun 1 2 3
Neytendastofa 0
Samkeppniseftirlitið 2 2
Verðlagsstofa skiptaverðs 0
Samtals

15


     2.      Hver hefur kostnaður ráðuneytisins og undirstofnana þess verið vegna þessara samninga, sundurliðað eftir árum og stofnunum?
    Eftirfarandi upplýsingar taka mið af kostnaði sem er umfram hefðbundinn uppsagnarfrest og námsleyfi sem starfsmaður á lögbundinn og/eða kjarasamningsbundinn rétt á. Enginn kostnaður féll til á árunum 2019–2020.
    Kostnaður ráðuneytisins tekur til orlofsuppgjörs og launatengdra gjalda. Kostnaður Matvælastofnunar tekur ekki til launatengdra gjalda. Kostnaður vegna starfslokasamninga Fiskistofu tekur til launa-, ferða- og endurmenntunarkostnaðar.
    Heildarkostnaður vegna starfslokasamninga ráðuneytisins og undirstofnana fellur til með eftirfarandi hætti á umbeðnu tímabili:

Ráðuneyti/stofnun
2018 2021 2022 2023 2024 2025 Samtals
Ráðuneyti 4.702.100 9.118.326 13.820.246
Ferðamálastofa 2.032.418 2.032.418
Fiskistofa 9.543.604 9.543.889 3.333.306 1.261.231 23.682.030
Hafrannsóknastofnun 2.842.446 32.143.660 34.986.106
Matvælastofnun 669.752 6.371.908 5.357.590 12.399.250
Neytendastofa 0
Samkeppniseftirlitið 8.096.363 8.096.363
Verðlagsstofa skiptaverðs 0
Samtals kostnaður 95.016.593

     3.      Hversu margir embættismenn hafa verið fluttir til í starfi hjá ráðuneytinu annars vegar og undirstofnunum þess hins vegar frá árinu 2018, sundurliðað eftir árum, stofnunum og hvort það hafi verið gert á grundvelli 36. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996, eða á grundvelli annarra ákvæða laganna, svo sem 37. gr.?
    Í þeim tilvikum þar sem embættismenn hafa flust milli tveggja ráðuneyta eða stofnana og til þess að koma í veg fyrir tvítalningu eru eingöngu taldir þeir embættismenn sem flust hafa frá ráðuneytinu og framangreindum undirstofnunum, auk þeirra embættismanna sem flust hafa innan ráðuneytisins eða innan stofnana. Hafi embættismaður hins vegar verið fluttur milli tveggja embætta eða úr embætti í starf hjá ráðuneytinu er þeirra getið í töflunni hér að aftan.
    Flutningur embættismanna á grundvelli 1. mgr. og 2. mgr. 36. gr. laga nr. 70/1996:

Ráðuneyti/stofnun 2018 2019 2020 2021 2022 2023 2024 2025 Samtals
Ráðuneyti 1 1 2 1 3 8
Matvælastofnun 1 1
Samtals 9

    Vakin er athygli á að hluti þeirra starfsmanna sem voru fluttir til í starfi hjá ráðuneytinu á tímabilinu voru fluttir samhliða flutningi stjórnarmálefna, þ.e. fjórir af átta einstaklingum. Nánar tiltekið fluttust tveir embættismenn frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti í menningar- og viðskiptaráðuneyti í kjölfar breytinga á skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands árið 2022. Þá voru tveir embættismenn fluttir vegna breytinga á skipan ráðuneyta árið 2025, einn til umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis og einn til utanríkisráðuneytis. Taflan hefur verið leiðrétt frá fyrra svari þar sem tilgreindir voru tveir starfsmenn hjá Ferðamálastofu sem voru ekki embættismenn og falla þar af leiðandi utan þeirrar afmörkunar sem fyrirspurnin byggir á.