Ferill 512. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 865 — 512. mál.
Fyrirspurn
til umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra um umhverfiseftirlit.
Frá Sigurjóni Þórðarsyni.
1. Hversu oft framkvæmdi Umhverfis- og orkustofnun umhverfiseftirlit á árinu 2025 og hversu margar eftirlitsskýrslur frá því ári hafa verið eða verða birtar á vefsíðu stofnunarinnar?
2. Hversu margar vettvangsferðir voru farnar vegna efnavörueftirlits af hálfu Umhverfis- og orkustofnunar á árinu 2025?
3. Hversu mörg starfsleyfi voru auglýst af hálfu Umhverfis- og orkustofnunar á árinu 2025?
4. Hversu mörg drög að starfsleyfum voru í vinnslu hjá Umhverfis- og orkustofnun á árinu 2025 og hversu mörg starfsleyfi voru gefin út það ár?
5. Hverjar voru tekjur Umhverfis- og orkustofnunar af eftirliti og útgáfu starfsleyfa á árinu 2025?
Skriflegt svar óskast.