Ferill 114. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 873 — 114. mál.
3. umræða.
Nefndarálit með breytingartillögu
um frumvarp til laga um breytingu á lögum um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, nr. 85/2007 (skammtímaleiga, gagnaöflun og rekstrarleyfi.
Frá meiri hluta atvinnuveganefndar.
Nefndin hefur fjallað um málið að nýju eftir 2. umræðu.
Með frumvarpinu er skv. 5. gr. lagt til að öll rekstrarleyfi til starfsemi í íbúðarhúsnæði innan þéttbýlis sem eru í gildi 1. janúar 2026 skuli gilda til 1. janúar 2031, enda komi ekki til niðurfellingar, afturköllunar eða sviptingar. Þá er með 6. gr. lagt til að lögin öðlist gildi 1. janúar 2026. Þetta tímamark er liðið og eru því lagðar til breytingar á frumvarpinu milli umræðna.
Lögð er til breyting á 5. gr. frumvarpsins þess efnis að þau rekstrarleyfi sem eru í gildi 1. apríl 2026 skuli gilda til 1. janúar 2032, í ljósi þess að fimm ára gildistíminn er þegar tekinn að líða. Þá er lagt til að lögin öðlist þegar gildi.
Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi
BREYTINGU:
1. 1. efnismálsl. 5. gr. orðist svo: Öll rekstrarleyfi til starfsemi í íbúðarhúsnæði innan þéttbýlis sem eru í gildi 1. apríl 2026 skulu gilda til 1. janúar 2032, enda komi ekki til niðurfellingar, afturköllunar eða sviptingar.
2. 6. gr. orðist svo:
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Alþingi, 5. mars 2026.
| Lilja Rafney Magnúsdóttir, form. |
Kristján Þórður Snæbjarnarson, frsm. |
Eydís Ásbjörnsdóttir. | |
| Sigurjón Þórðarson. | Valdimar Breiðfjörð Birgisson. | ||