Ferill 515. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 874  —  515. mál.




Fyrirspurn


til dómsmálaráðherra um fjölda handtekinna með erlent ríkisfang.

Frá Diljá Mist Einarsdóttur.


     1.      Hve margir einstaklingar með erlent ríkisfang voru handteknir 2019–2025, sundurliðað eftir árum, tegund brota og þjóðerni?
     2.      Hvert var hlutfall útlendinga af heildarfjölda handtekinna á hverju ári á sama tímabili, sundurliðað eftir tegund brota? Óskað er eftir því að ef um er að ræða handtöku vegna gruns um brot á almennum hegningarlögum verði svarið sundurliðað eftir brotaflokkum.


Skriflegt svar óskast.