Ferill 517. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 879  —  517. mál.




Fyrirspurn


til mennta- og barnamálaráðherra um meðferðarúrræði fyrir ungmenni sem glíma við geð- og fíknivanda.

Frá Höllu Hrund Logadóttur.


     1.      Hvenær telur ráðherra að hægt verði að bjóða upp á markvissa, samþætta og heildstæða meðferð fyrir ungmenni sem glíma við geð- og fíknivanda og hvaða aðilar bera ábyrgð á innleiðingu og rekstri slíkra úrræða?
     2.      Telur ráðherra að leysa þurfi vandamál tengd rofi á þjónustu við 18 ára aldur sem getur grafið undan bataferli og aukið líkur á fráhvarfi úr meðferð og bakslagi?
     3.      Telur ráðherra raunhæft að ríkið fjármagni og bjóði upp á sambærileg úrræði erlendis á meðan beðið er eftir heildstæðum lausnum hérlendis? Ef svo er, hver væru viðmið, fjöldi, kostnaðarrammi og eftirfylgni þeim tengd?
     4.      Liggja fyrir skýr markmið, mælikvarðar og framkvæmdaáætlun í fjárlögum yfirstandandi árs um úrbætur á meðferðarúrræðum vegna geð- og fíknivanda ungmenna og hvaða ný eða styrkt úrræði verða fjármögnuð, fyrir hversu marga og með hvaða eftirfylgni?


Skriflegt svar óskast.