Ferill 519. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 881 — 519. mál.
Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um óskir brotaþola Skeggja Ásbjarnarsonar.
Frá Sigmundi Erni Rúnarssyni.
1. Hyggst ráðherra bregðast við óskum brotaþola Skeggja Ásbjarnarsonar um að fram fari rannsókn á brotunum og ábyrgð skólayfirvalda á sínum tíma?
2. Hyggst ráðherra tryggja að brotaþolar Skeggja fái sanngirnisbætur eins og fordæmi eru fyrir gagnvart brotaþolum sem áttu að njóta skjóls innan annarra opinberra stofnana?
Skriflegt svar óskast.