Ferill 520. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 882  —  520. mál.




Fyrirspurn


til dómsmálaráðherra um dvalarleyfi forsjáraðila.

Frá Karli Gauta Hjaltasyni.


    Hversu mörgum hefur verið veitt dvalarleyfi á grundvelli XIII. bráðabirgðaákvæðis laga nr. 80/2016 og hvaða ríkisföng höfðu þeir? Óskað er upplýsinga um lengd dvalar þess sem dvaldi lengst í landinu og meðallengd dvalar þeirra sem um ræðir. Jafnframt er óskað eftir fjölda forsjáraðila, barna, fjölda einstaklinga sem fengu dvalarleyfi á grundvelli fjölskyldusameiningar samkvæmt ákvæðinu og fjölda þeirra sem hafa í kjölfarið fengið útgefið ótímabundið dvalarleyfi.


Skriflegt svar óskast.