Ferill 521. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 883  —  521. mál.




Fyrirspurn


til dómsmálaráðherra um fjölda ákærðra með erlent ríkisfang vegna brota gegn almennum hegningarlögum.

Frá Diljá Mist Einarsdóttur.


     1.      Hve margir einstaklingar með erlent ríkisfang voru ákærðir fyrir brot gegn almennum hegningarlögum á hverju ári árin 2019–2025, sundurliðað eftir ákvæðum laganna og þjóðerni?
     2.      Hvert var hlutfall útlendinga af heildarfjölda ákærðra á hverju ári á sama tímabili, sundurliðað eftir ákvæðum almennra hegningarlaga?



Skriflegt svar óskast.


Greinargerð.

    Fyrirspurnin er lögð fram vegna svars ráðherra á þskj. 748 á yfirstandandi þingi. Óskað er nánari sundurliðunar á brotum gegn almennum hegningarlögum.