Ferill 522. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 884  —  522. mál.




Fyrirspurn


til utanríkisráðherra um gögn á upplýsingavef um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið.

Frá Diljá Mist Einarsdóttur.


    Er úttekt Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands á stöðu viðræðna Íslands og ESB frá 2014 ekki að finna á sérstökum upplýsingavef utanríkisráðuneytisins um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu? Ef ekki, af hverju ekki?


Skriflegt svar óskast.