Ferill 525. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 892  —  525. mál.




Fyrirspurn


til umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra um hreindýraveiðar og tjón vegna ágangs hreindýra.

Frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni.


     1.      Hver hefur útgefinn hreindýraveiðikvóti verið undanfarin sex ár?
     2.      Hver hefur gjaldskráin verið fyrir leyfi til veiða og hvernig hafa innheimt gjöld skipst á milli Umhverfisstofnunar, Náttúrustofu Austurlands og landeigenda í formi arðs?
     3.      Hefur ráðherra í hyggju að veita SKOTVÍS áheyrnarfulltrúa hjá hreindýraráði?
     4.      Hvert er mat ráðuneytisins á tjóni landeigenda vegna ágangs hreindýra á ársgrundvelli sl. sex ár?


Skriflegt svar óskast.