Ferill 527. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 896 — 527. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um greiðsluþátttöku einstaklinga á hjúkrunarheimilum.
Frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni.
Hver var heildargreiðsluþátttaka einstaklinga vegna dvalarkostnaðar á hjúkrunarheimilum síðastliðin 20 ár? Svar óskast sundurgreint eftir fjölda greiðenda á ári, upphæð á ári og heildarupphæð sem hlutfall af rekstrarkostnaði hjúkrunarheimila ár hvert.
Skriflegt svar óskast.