Ferill 543. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 921  —  543. mál.




Fyrirspurn


til félags- og húsnæðismálaráðherra um fjölda einstaklinga frá MENAP-löndum á örorku- og endurhæfingarlífeyri.

Frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni.


     1.      Hvað hafa margir einstaklingar frá MENAP-löndum (Miðausturlöndum, Norður-Afríku, Afganistan og Pakistan) fengið endurhæfingar- eða örorkulífeyri sl. tíu ár, sundurliðað eftir árum?
     2.      Hver er heildarfjárhæð slíkra lífeyrisgreiðslna og hvernig skiptast þær eftir kynjum og hver er meðalaldur einstaklinganna, sundurliðað eftir árum?
     3.      Hver er meðalfjárhæð slíkra lífeyrisgreiðslna til hvers einstaklings sl. tíu ár?
     4.      Hver er meðalaldur einstaklinganna á hverju ári sl. tíu ár?


Skriflegt svar óskast.